HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Mun FH fá Garðar á láni?

Mun FH fá Garðar á láni?

Mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson

Harpixið er búið að fá mikið af skilaboðum síðustu daga um að Garðar Ingi Sindrason leikmaður Gummersbach gæti komið á láni til uppeldisfélagsins FH og leika með liðinu í Evrópudeildinni.

Garðar samdi við Gummerbach í vor og tekur þátt í undirbúningstímabilinu hjá liðinu en sagan segir að FH hafi haft samband við þýska liðið og kannað hvort að það væri möguleiki á því að fá Garðar aftur á láni til að hjálpa liðinu í Evrópudeildinni. 

Aron Pálmarsson tók við þjálfun FH í sumar en hann er frændi Garðars Inga og eru hann og Guðjón Valur þjálfari Gummersbach einnig góðir vinir svo að hæg eru heimatökin.

Garðar Ingi skoraði 168 mörk og gerði 168 stoðsendingar í öllum leikjum með FH í fyrra og ljóst er að hann myndi styrkja liðið mikið í öllum keppnum fari það þannig að hann komi aftur. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  2. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  3. Fimm sem gætu komið heim úr atvinnumennskuErlendar fréttir
  4. Yfirgefur FramOlísdeild kvenna
  5. Jónas heldur útOlísdeild karla