HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Landslið karla

Áhlaupið kom of seint

Áhlaupið kom of seint

Mynd: HSÍ

Íslenska karla U20 landsliðið mætti nágrönnum okkar í Danmörku í seinni leik liðsins í milliriðlum Evrópumótsins í dag. Fyrir leik var ljóst að íslenska liðið varð að vinna til að eiga séns á sæti í 8-liðaúrslitum en liðið var á botni milliriðilsins með 0 stig. Leikurinn var jafn fyrstu 25 mínuturnar en staðan í hálfleik var 17-14 dönum í vil. 

Danirnir mættu mun sterkari til leiks í seinni hálfleik og komust mest 8 mörkum yfir. Íslenska liðið tók hins vegar við sér þegar um 10 mínutur voru eftir af leiknum og minnkuðu munin niður í 2 mörk en það var einfaldlega of seint og lauk leiknum því með tveggja marka tapi 31-29. 

Markaskorarar: 

Ágúst Guðmundsson - 9 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 7 Mörk
Andri Erlingsson - 5 Mörk
Bessi Teitsson - 3 Mörk
Stefán Magni Hjartarson - 2 Mörk 
Jökull Blöndal Björnsson - 2 Mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson - 1 Mark

Markvarsla: 

Jens Sigurðarson - 8 Varin 23.53%
Alexander Ásgrímsson - 4 Varin 44.44% 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  2. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  3. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  4. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla
  5. Fimm sem gætu komið heim úr atvinnumennskuErlendar fréttir