1. Arnór Snær Óskarsson
Þetta er nafnið sem allir vissu að yrði á listanum. Arnór Snær kom óvænt heim úr atvinnumennsku frá Koldstad á síðasta tímabili til þess að finna aftur gleðina og fá að spila. Hann sýndi það og sannaði að hann er besti leikmaður deildarinnar en hann skoraði 202 mörk og gerði 114 stoðsendingar ásamt því að vera valinn mikilvægastur, bestur og markahæstur á lokahófi HSÍ. Núna taka Valsmenn þátt í Evrópukeppninni og er það ljóst að lið munu fylgjast vel með Arnóri. Harpixið yrði ekki hissa ef hann færi aftur út í atvinnumennskuna um áramótin.
2. Ómar Darri Sigurgeirsson
Ómar Darri er ein efnilegasta skytta landsins og bætti sig mikið á síðasta tímabili. Hann er stór og sterkur og getur spilað á báðum endum vallarins. Þetta er leikmaður sem myndi henta þýska boltanum vel og Aron Pálmarsson er einmitt maðurinn sem ætti að geta hjálpað honum að komast á það level. Verður gaman að fylgjast með honum í vetur.
3. Skarphéðinn Ívar Einarsson
Skarphéðinn Ívar er leikmaður sem á mikið inni að mati Harpixins þrátt fyrir að hafa skorað 130 mörk og gert 62 stoðsendingar á síðasta tímabili. Hann sló í gegn þegar hann var ungur hjá KA og kom suður í bæinn til að taka næsta skref og þróa leik sinn. Það verður áhugavert að sjá Skarphéðinn á næsta tímabili en Gunnar Magnússon er einn færasti þjálfari landsins og þetta er klárlega leikmaður sem er að banka á dyrnar á atvinnumennskunni.
4. Gunnar Róbertsson
Gunnar Róbertsson skoraði 154 mörk og gerði 91 stoðsendingu á síðasta tímabili og er einungis 18 ára gamall. Það hafa heyrst sögusagnir af því að lið erlendis séu nú þegar farinn að fylgjast með kappanum og það er ljóst ef að hann á annað svona gott tímabil að það verði erfitt fyrir Valsmenn að halda honum. Danmörk er líklegur áfangastaður en hann bjó áður í Danmörku og æfði með yngri flokkum Álaborgar á meðan að faðir hans Róbert Gunnarsson lék og þjálfaði hjá félaginu.
5. Elís Þór Aðalsteinsson
Eyjamenn kunna að búa til atvinnumenn og er Elís Þór líklega næstur í röðinni. Hann skoraði 111 mörk og gerði 69 stoðsendingar í 17 leikjum á síðasta tímabili en það mun mæða mun meira á honum í vetur. Ef hann heldur sér heilum í vetur er þetta ekki spurning hvenær heldur hvort hann fari út og eru norðurlöndin líklegur áfangastaður.
FRÉTT
Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabilið

Mynd: mbl.is/Eggert Jóhannesson





