HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

FH og Haukar með sigra

FH og Haukar með sigra

Mynd: FH handbolti

Hafnarfjarðarmótið hélt áfram í gær en þar mættust Haukar og HK og FH og Afturelding. 

Í fyrri leik dagsins mættust Haukar og HK en leikurinn var jafn til að byrja með og leiddu Haukar með þremur mörkum þegar gengið var til hálfleiks. Haukarnir byrjuðu seinni hálfleikin betur og komust sjö mörkum yfir og héldu þeir því forskoti út leikinn og unnu að lokum 27-20. 

Í seinni leik dagsins mættust FH og  Afturelding. FH tók strax frumkvæði í leiknum og leiddu með sjö mörkum í hálfleik 25-18 en það var mikið skorað í þessum leik. FHingar héldu forskotinu allan leikin og gáfu lokatölur kannski ekki alveg rétta mynd en leiknum lauk 40-35 fyrir FHingum sem komust mest níu mörkum yfir en Mosfellingar tóku 5-1 kafla í lokin í stöðunni 39-30. 

Hafnarfjarðarmótið heldur áfram á laugardag með viðureign Aftureldingar og HK og svo verður hafnarfjarðarslagur. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Er ÍR búið að finna aðstoðarmann Bjarna?Grill66deild karla
  3. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  4. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora