HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Erlendar fréttir

Stórsigur eyjakvenna og nýliðarnir unnu ÍR

Stórsigur eyjakvenna og nýliðarnir unnu ÍR

Mynd: HSÍ

Ragnarsmótið hélt áfram í gær en þar mættust ÍBV og Víkingur kvennameginn og Víkingur og ÍR karlameginn.

Í fyrri leik dagsins mættust ÍBV og Víkingur en eyjakonur tóku strax frumkvæðið. Það var mikið skorað í fyrri hálfleik og var staðan 26-19 fyrir eyjakonum. Seinni hálfleikurinn reyndist mun erfiðari fyrir Víking en leiknum lauk með tuttugu marka sigri eyjakvenna 49-29 og Víkingur hefur tapað báðum leikjunum á mótinu með samtals 39 mörkum. 

Seinna um kvöldið mættust Víkingur og ÍR sem var mjög spennandi viðureign þar sem að ÍRingar féllu í fyrra og Víkingur komst upp. Víkingar leiddu í hálfleik með 6 mörkum en það vantaði nokkra lykilpósta í lið ÍR. Breiðhyltingar svöruðu aðeins fyrir sig í seinni hálfleik en misstu svo leikinn aftur frá sér og unnu nýliðarnir að lokum 7 marka sigur. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Er ÍR búið að finna aðstoðarmann Bjarna?Grill66deild karla
  3. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  4. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora