Klukkan 17:30 í dag mættust kvennalið Selfoss og Víkings í opnunarleik Ragnarsmótsins. Víkingar sáu aldrei til sólar en leikurinn endaði með 19 marka sigri Selfyssinga sem komust mest 20 mörkum yfir í leiknum. Hjá Selfossi var Perla Ruth markahæst með 11 mörk en hjá Víkingum var nýliðinn Anita Muratovic með 8 mörk.
Seinna í kvöld mættust karlalið félagana og var leikurinn jafn allan tímann og lauk á endanum með eins marks sigri Selfyssinga. Ásgeir Snær Vignisson besti leikmaður Víkings fékk rautt spjald á 23' mínutu leiksins og tóku Selfyssingar völdin eftir það. Víkingar unnu sig hins vegar aftur inn í leikinn en þegar um 10 mínutur voru til leiksloka fékk Sigurður Páll Matthíasson rautt spjald hjá Víkingum og þar að leiðandi tveir af þeirra bestu mönnum farnir útaf.
Ragnarsmótið heldur áfram á morgun en hægt er að horfa á leikina í gegnum handboltapassan á Livey.






