HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Erlendar fréttir

Fimm sem gætu komið heim úr atvinnumennsku

Fimm sem gætu komið heim úr atvinnumennsku

Mynd: mbl.is/Óttar

Harpix.is hefur tekið saman lista yfir fimm leikmenn sem eru í atvinnumennsku en gætu snúið heim í vetur eða næsta sumar. 

1. Ísak Gústafsson

Ísak Gústafsson var einn besti leikmaður Vals áður en að hann hélt út í atvinnumennskuna hjá TMS Ringsted. Hann er uppalinn á Selfossi en gekk til liðs við Valsmenn sumarið 2023 og vann Evrópubikarinn með þeim. Harpix.is hefur heyrt sögusagnir af því að Valsmenn hafi hlerað Ísak um þann möguleika að koma aftur á Hlíðarenda ef að það færi þannig að Arnór Snær Óskarsson færi aftur út í atvinnumennskuna. Samningur Ísaks við Ringsted rennur út næsta sumar en hann skoraði 71 mörk í 28 leikjum fyrir Ringsted sem lenti í 11. sæti í dönsku úrvalsdeildinni.  

2. Guðmundur Bragi Ástþórsson

Haukamaðurinn Guðmundur Bragi var einn allra besti leikmaður deildarinnar áður en hann hélt út í atvinnumennsku til Bjerringbro Silkeborg. Hann fékk takmarkaðan spiltíma þar og færði sig svo yfir til TMS Ringsted þar sem hann skoraði 62 mörk í 27 leikjum í vetur. Guðmundur gerði eins árs samning við Ringsted og hefur nú gengið til liðs við Bregenz í Austurríki. Guðmundur sló í gegn sem lánsmaður hjá Aftureldingu áður en hann tók yfir deildina með Haukum og segir sagan að bæði þessi lið hafi hlerað hann í sumar. Það hefur verið mikið flakk á honum og hann gæti komið heim næsta sumar til þess að taka skrefið aftur út í betra lið. 

3. Tryggvi Þórisson

Tryggvi Þórisson er leikmaður sem flest ef ekki öll lið Olís Deildarinnar gætu notað en hann sló í gegn með Selfossi áður en hann gekk til liðs við IK Savehof í Svíþjóð. Tryggvi spilaði með Savehof í þrjú ár og varð m.a Sænskur meistari áður en hann samdi við Elverum þar sem hann skoraði 31 mark í 23 leikjum í vetur. Samningur Tryggva við Elverum rennur út næsta sumar og munu eflaust flest lið í Olís deildinni hlera hann en hann getur spilað á báðum endum vallarins og spilaði sína fyrstu landsleiki gegn Egyptalandi núna í vor. 

4. Tryggvi Garðar Jónsson

Tryggvi Garðar var lykilmaður í liði Fram sem varð bæði Íslands-og bikarmeistari árið 2024/2025. Hann fór út í atvinnumennsku til Apla Hard í Austurríki í fyrra en skipti í sumar yfir til Vikings Bergen í efstu deild í Noregi. Valsmenn höfðu verið í sambandi við Tryggva um að reyna að fá hann aftur heim í sumar en Tryggvi er uppalinn á Hlíðarenda. Tryggvi var á sínum tíma eitt mesta efnið á Íslandi en meiðsli hafa sett strik í reikninginn. 

5. Elvar Ásgeirsson

Landsliðsmaðurinn Elvar Ásgeirsson verður 33 ára á næsta ári en hann hefur verið í atvinnumennsku síðan árið 2019. Hann hefur spilað með Stuttgart í Þýskalandi, Nancy í Frakklandi og hefur verið hjá Ribe-Esbjerg síðan 2022. Elvar sló í gegn með Íslenska landsliðinu á EM 2022 og var valinn besti leikmaður Ribe-Esbjerg á síðasta tímabili. Elvar er með samning við danska úrvalsdeildarfélagið til 2028 en liðið hefur verið í botnbáráttu síðastliðin 3 ár en alltaf haldið sér uppi. Þetta er leikmaður sem myndi styrkja öll lið í efstu deild.

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla