Olísdeild Karla hefst eftir 63 daga eða þann 3. September. Í tilefni þess hefur ritstjórn Harpix.is tekið sig saman og búið til ótímabæra spá fyrir deildina. Þessu verður skipt upp í tvo hluta, efstu 6 liðin og neðstu 6 liðin.
1. Sæti: FH
FH fór alla leið í úrslitaeinvígið á síðasta tímabili en þar töpuðu þeir fyrir val. Það urðu þjálfaraskipti í Kaplakrikanum en Aron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari liðsins. Hópurinn er árinu eldri og reynslunni ríkari ásamt því að þeir hafa samið við Ágúst Guðmundsson, Antoine Óskar Pantano og Einar Rafn Eiðsson. FHingar hafa misst þá Ágúst Birgisson, Birgi Má Birgisson og Garðar Inga Sindrason en þeir eru hungraðir og ætla sér að berjast um alla titla á næsta tímabili.
2. Sæti: Valur
Það hafa verið töluverðar breytingar hjá Íslandsmeisturunum en það er alltaf hægt að treysta á það að valsmenn mæta með sterkt lið til leiks. Þeir hafa nú þegar samið við þá Jón Ásgeir Eyjólfsson, Bessa Teitsson, Tjörva Tý Gíslason og Ágúst Inga Óskarsson. Sagan segir að þeir séu einnig í viðræðum við Stiven Tobar Valencia um að snúa heim og að Magnús Óli muni hætta við að hætta. Stærsta spurningin með Val er sú hvort að einbeiting þeirra verði á Evrópukeppninni og það muni koma niður á spilamennsku þeirra í deildinni.
3. Sæti: Haukar
Bikarmeistararnir munu mæta sterkir til leiks í ár. Gunnar Magnússon kann að búa til sigurlið og það er alltaf krafa um titla hjá Haukum. Haukarnir hafa sótt þá Hjört Inga Halldórsson og Sigurð Jefferson frá HK en hafa á sama tíma misst þá Adam Hauk Baumruk, Brynjólf Snæ Brynjólfsson, Jón Ómar Gíslason og Magnús Gunnar Karlsson. Freyr Aronsson er reynslunni ríkari en hann bar uppi sóknarleik liðsins oft á köflum. Stærsta spurningin hjá Haukum er hvort að Aron Rafn muni taka annað tímabil eða ekki en hann og Grétar Ari mynda eitt öflugasta markmannsteymi landsins.
4. Sæti: KA
Það er mikill uppgangur á Akureyri og mæta þeir gulklæddu með ógnarsterkt lið til leiks. Þeir sóttu Dag Árna Heimisson aftur heim og munu hann og Bjarni Ófeigur fara fyrir sóknarleik liðsins. Ágúst Elí og Dagur Gauti gengu til liðs við norðanmenn um áramótin og er það ljóst að þeir ætla sér að vera í eitt af efstu sætunum. Einar Rafn Eiðsson flutti aftur suður og gekk til liðs við FH.
5. Sæti: Afturelding
Mosfellingar munu mæta mjög hungraðir til leiks á tímabilinu. Þeir skiptu um þjálfarateymi og gáfu sér góðan tíma í að finna réttu mennina til að stýra skipinu. Þeir hafa fengið þá Hans Jörgen Ólafsson og Hákon Daða Styrmisson til liðs við sig ásamt því að sagan segir að þeir munu sækja Birki Benediktsson og halda Árna Braga. Mosfellingar hafa misst þá Ihor Kopysinskyi, Ágúst Inga Óskarsson og Sveinur Olafsson. Lið sem gæti komið á óvart.
6. Sæti: Fram
Fram er alltaf Fram. Stærsta breytan hjá Fram er sú að Rúnar Kárason hefur lagt skónna á hilluna og það verður áhugavert að sjá hverjir munu stíga upp til að leiða sóknarleik liðsins í staðinn. Þeir sóttu Hauk Inga Hauksson frá HK og virðast vera í leit af markmanni en allt bendir til þessi að Breki muni yfirgefa félagið í sumar. Handkastið birti í morgun að Eiður Rafn Valsson hafi óskað eftir því að fá að yfirgefa Fram en hann virðist vera á leiðinni í Kaplakrika.
Þetta var fyrri hlutinn af ótímabæru spánni og verður seinni hluti birtur seinna í vikunni.
FRÉTT
Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hluti

Mynd: HSÍ





