HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Fimm bestu útlendingarnir sem hafa spilað á Íslandi

Fimm bestu útlendingarnir sem hafa spilað á Íslandi

Mynd: mbl.is/Golli

Harpix.is hefur tekið saman lista yfir fimm bestu útlendinganna sem hafa komið hingað til lands og spilað í Olís Deildinni. Eins og allir vita þá hafa margir skrautlegir karakterar komið til landsins og sumir þeirra slegið í gegn og aðrir ekki jafn mikið. Við gerð listans var ákveðið að velja einungis leikmenn sem hafa spilað á landinu frá 2015. 

5. Sæti: Josip Juric Grgic 

Josip Juric Grgic kom til landsins tímabilið 2016/2017. Það var lítið vitað um leikmanninn annað en það að hann hefði verið hluti af U19 ára landsliði Króatíu sem hafði unnið silfur á heimsmeistaramótinu 2013. Josip stimplaði sig heldur betur inn í deildina með krafti og skoraði 176 mörk í 35 leikjum fyrir Val en þeir urðu bæði bikar-og Íslandsmeistarar þetta tímabil. Josip var einnig líflegur utan vallar og nefbrotnaði eftir átök á skemmtistaðnum B5 þetta sama tímabil sem varð til þess að hann missti af einhverjum leikjum. 

4. Sæti: Phil Döhler

Árið 2019 fengu FHingar til sín þýskan markvörð sem heiti Phil Döhler. Phil Döhler byrjaði hálf brösulega í deildinni en eftir að hann aðlagaðist þá var þetta einn allra besti markvörður deildarinnar. Þrátt fyrir að hafa ekki unnið titil með FH gat Phil Döhler unnið leiki fyrir liðið upp á sitt einsdæmi. Eftir fjögur farsæl tímabil með FH hefur Phil spilað í efstu deild í Svíþjóð og Noregi með Karlskrona, Sandefjord og Amo. 

3. Sæti: Áki Egilsnes

Áki Egilsnes kom til landsins tímabilið 2017/2018 og átti eftir að simpla sig inn sem ein allra besta hægri skytta landsins. Það má segja það að hann hafi verið byrjunin á því að Færeyingar myndu streyma til landsins en Áki var algjör markavél á tíma sínum hjá KA. Þrátt fyrir að vinna enga titla með félaginu þá bar hann oft á köflum uppi sóknarleik liðsins en Áki var líka færeyskur landsliðsmaður. Eftir fjögur ár á Íslandi hélt hann til Þýskalands en spilar í dag í Færeyjum.

2. Sæti: Mikk Pinnonen

Mikk Pinnonen kom til Aftureldingar í Janúar 2016. Mikk varð algjör martröð fyrir varnarmenn deildarinnar en þrátt fyrir að vera ekki sá stærsti á vellinum var hann með gríðarlegan sprengikraft og gat hoppað hæð sína  eða prjónað sig í gegn með fintum í báðar áttir. Mikk var eistneskur landsliðsmaður og fór alla leið með Aftureldingu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn á sínu fyrsta tímabili en tókst aldrei að vinna titil með félaginu. Mikk skoraði 315 mörk í 75 leikjum með Mosfellingum og tala menn ennþá um að þetta sé einn besti útlendingurinn sem hefur spilað í deildinni. 

1. Sæti: Ihor Kopyshynskyi 

Í fyrsta sæti listans er enginn annar en Ihor Kopyshynskyi. Ihor kom fyrst til landsins árið 2016 og lék með bæði Akureyri og síðar Þór og stimplaði sig inn sem frábær hornamaður. Ihor flutti svo suður og gekk til liðs við Hauka en eftir eitt tímabil í Haukum fór hann til Aftureldingar þar sem hann sýndi það að hann væri einn allra besti ef ekki besti vinstri hornamaður landsins. Ihor var stór þáttur í því að Mosfellingar urðu bikarmeistarar og var valinn leikmaður leiksins þegar þeir unnu Hauka. Ihor er í dag kominn með íslenskan ríkisborgararétt og ef að hann væri aðeins yngri væri ekki ólíklegt að hann gerði tilkall til þess að vera í umræðunni um að vera valinn í landsliðið en hann hefur verið einn mesti markaskorari landsins síðustu ár. Ihor er í dag samningslaus en samkvæmt heimildum Harpixins eru þó nokkur félög í viðræðum við kappann. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. ÍR fær liðsstyrk frá HlíðarendaGrill66deild karla
  2. Þetta eru liðin sem taka þátt á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  3. Staðfesta loksins tíðindinnOlísdeild karla
  4. Er Ólafur Brim á heimleið?Olísdeild karla
  5. Ekkert verður úr heimkomuniOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora