1. Jökull Blöndal
Það kemur líklega engum á óvart að Jökull sé í efsta sætinu. Þetta er strákur sem hefur allt sem alvöru skytta þarf, hann er stór og sterkur og getur skorað nánast hvaðan sem er á vellinum ásamt því að vera frábær varnarmaður sem minnir mann oft á Þorstein Leó eða Birgi Stein þegar þeir voru að spila á Íslandi. Það hafa líklega öll lið í efstu deild haft samband við ÍR til að forvitnast um stöðu Jökuls. Þau lið sem eru í efstu deild og þyrftu mest á kröftum Jökuls að halda eru Afturelding, HK og Valur.
2. Bernard Kristján Owusu Darkoh
Eins og flestir hafa áttað sig á þá verður eitthvað af ÍRingum á þessum lista og í öðru sætinu er hægri skyttan Bernard. Bernard er versta martröð varnarmannsins einn á móti einum en hann hefur gríðarlegan sprengikraft, getur fintað í báðar áttir og skorað fyrir utan. Þetta er strákur sem minnir á Arnór Snæ Óskarsson og það kemur á óvart að það sé ekki búið að heyrast mikið um að lið séu að senda fyrirspurnir útaf Bernard. Þau lið í efstu deild sem þyrftu mest á kröftum Bernards að halda eru Fram, KA og Víkingur.
3. Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson
Aðalsteinn Örn er leikmaður sem mörg lið í efstu deild gætu haft not fyrir. Aðalsteinn er örvhent skytta sem skoraði 161 mark í 21 leik með Fjölni í Grill66 deildinni á síðasta tímabili ásamt því að skora 24 mörk í 3 leikjum í bikarnum. Aðalsteinn fann sig ekki alveg hjá Stjörnunni en hann er reynslunni ríkari og hefur alveg sýnt það að hann hefur gæðin til að vera í efstu deild. Þau lið sem þyrftu á kröftum Aðalsteins að halda eru Fram, KA og Víkingur.
4. Patrekur Smári Arnarsson
Patrekur er nafn sem er á vörum margra þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Hann er línumaður sem spilar á báðum endum vallarins og er fyrirliði U18 landsliðsins. Snorri Steinn hrósaði honum hástert í viðtölum í vetur og æfðu hann og Jökull Blöndal með A landsliði karla í vor. Þetta er leikmaður sem að öll lið eru á eftir og þau lið í efstu deild sem þyrftu mest á kröftum hans að halda eru Afturelding, Fram og Stjarnan.
Patrekur er nafn sem er á vörum margra þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Hann er línumaður sem spilar á báðum endum vallarins og er fyrirliði U18 landsliðsins. Snorri Steinn hrósaði honum hástert í viðtölum í vetur og æfðu hann og Jökull Blöndal með A landsliði karla í vor. Þetta er leikmaður sem að öll lið eru á eftir og þau lið í efstu deild sem þyrftu mest á kröftum hans að halda eru Afturelding, Fram og Stjarnan.
5. Endijis Kusners
Endijis hefur verið að spila á Íslandi síðastliðin 6 ár og hefur sýnt það að það búa mikil gæði í honum. Þetta er leikmaður sem kallar ekki allt ömmu sína og hefur verið reglulega í A landsliði Lettlands. Hann spilar á báðum endum vallarins og getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi. Endijis býr yfir gríðarlegri reynslu þrátt fyrir að vera einungis 23 ára gamall. Þau lið í efstu deild sem þyrftu mest á kröftum Endijis að halda eru HK, ÍBV, Selfoss, Stjarnan og Víkingur.






