HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Landslið karla

Svekkjandi tap á loka sekúndunni

Svekkjandi tap á loka sekúndunni

Mynd: HSÍ

U20 landsliðs karla mætti Króatíu í dag klukkan 14:00. Þetta var fyrsti leikur liðsins í milliriðlum. 

Leikurinn var jafn til að byrja með en íslenska liðið leiddi með einu marki í hálfleik 13-12. Íslenska liðið mætti sterkara til leiks í seinni hálfleik og komst mest fjórum mörkum yfir í 21-17. Þá kveiktu króatarnir aftur á sér og náðu að jafna metin í 23-23 þegar fimm mínutur voru eftir af leiknum. Íslenska liðið skoraði hins vegar bara 2 mörk á síðustu átta mínutum leiksins á móti 6 hjá Króötum og lauk leiknum með eins marks tapi en Króatar skoruðu sigurmarkið þegar 2 sekúndur voru eftir af leiknum.

Liðið fór með mikið af góðum færum í seinni hálfleiknum en þeir verða núna að vinna Danmörku á morgun klukkan 14:00 ef að þeir ætla að eiga séns á að komast áfram í 8-liða úrslitin. 

Markaskorarar:

Andri Erlingsson - 6 Mörk
Harri Halldórsson - 4 Mörk
Ágúst Guðmundsson - 4 Mörk
Elís Þór Aðalsteinsson - 4 Mörk
Bessi Teitsson - 2 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 2 Mörk
Antoine Óskar Pantano - 2 Mörk
Stefán Magni Hjartarson - 1 Mark

Markvarsla

Alexander Ásgrímsson - 12 Varðir 31.58%

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla