Arnór Snær Óskarsson
Aftur, það kemur eflaust engum á óvart að Arnór Snær skuli vera á þessum lista. Arnór gjörbreytti liði Vals á síðasta tímabili og skoraði 202 mörk í 24 leikjum á síðasta tímabili. Arnór hefur sagt það í viðtölum að markmiðið hans er að komast aftur út í atvinnumennskuna og þá mun hann þurfa að spila vel. Arnór getur skorað mörk í öllum regnboganslitum og getur verið martröð fyrir markmenn og varnarmenn deildarinnar.
Hákon Daði Styrmisson
Hákon Daði snéri heim úr atvinnumennskunni á síðasta tímabili og skoraði 46 mörk í 7 leikjum fyrir eyjamenn. Nú hefur hann samið við Mosfellinga og gætu hann og Einar Baldvin Baldvinsson myndað ógnarsterkt hraðaupphlaups teymi. Hákon er frábær vítaskytta og keyrir upp hraða miðju. Þetta er leikmaður sem elskar að skora þorir að taka úrslita skotin.
Freyr Aronsson
Hinn ungi og efnilegi Freyr Aronsson sló í gegn á síðasta tímabili en hann skoraði 180 mörk í 28 leikjum með Haukum. Hann bar uppi sóknarleik liðsins og oft á köflum leit það út fyrir að hann gæti skorað þegar að hann vildi. Það verður gaman að sjá Frey mæta til leiks á næsta tímabili og sjá hvort að markmenn deildarinnar hafi einhver svör við honum.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson
Bjarni Ófeigur var einn allra besti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabilið. Hann skoraði 173 mörk í 24 leikjum og vann marga leiki fyrir KA. Nú er Dagur Árni kominn aftur heim og það verður áhugavert að sjá þeirra samspil en Dagur ætti að geta klippt inn Bjarna nokkrum sinnum í leik. Bjarni er ein allra besta skytta deildarinnar og leikmaður sem getur allt.
Hannes Höskuldsson
Selfyssingurinn Hannes Höskuldsson kann að skora mörk. Hann skoraði 154 mörk í 21 leik í fyrra en hann er fyrirliði Selfoss. Selfyssingar munu þurfa á Hannesi að halda ef að þetta á ekki að vera langur og strangur vetur en hann þorir að taka úrslitaskotin. Hannes er góð vítaskytta og getur skorað úr ómögulegum færum.