Samkvæmt heimildum Harpix.is þá er hægri skyttan Hildur Lilja Jónsdóttir að yfirgefa Fram.
Hildur gekk til liðs Fram árið 2024 eftir að hafa verið hjá Aftureldingu í eitt tímabil en hún er uppalinn hjá KA/Þór og varð m.a Íslands-og bikarmeistari með Akureyrarliðinu. Hildur átti einnig fast sæti í yngri landsliðum.
Ástæðan fyrir því að Hildur er að yfirgefa Fram er sú að hún hyggst flytja erlendis til þess að hefja nám.
Framarar þurfa þó ekki að hafa áhyggjur hægra meginn á vellinum en Lena Margrét Valdimarsdóttir er kominn aftur heim úr atvinnumennsku og unglingalandsliðsmaðurinn Dagmar Guðrún Pálsdóttir framlengdi einnig samningi sínum við félagið á dögunum.
FRÉTT
Yfirgefur Fram

Mynd: Fram handbolti





