Sögur gengu um að Oscar Lykke yrði ekki áfram hjá Aftureldingu en ef vefur HSÍ er skoðaður er daninn með nýjan samning við félagið sem tók gildi þann 1. júní í sumar.
FRÉTT
Áfram danskir dagar í Mosfellsbæ

Mynd: Rúv / Mummi Lú
Það verða áfram danskir dagar í Mosfellsbæ en Oscar Lykke verður áfram í herbúðum félagsins samkvæmt heimildum Harpixins. Daninn ungi gekk í raðir Aftureldingar frá TMS Ringsted á síðasta tímabili og skoraði 94 mörk og gerði 52 stoðsendingar fyrir lið Mosfellinga. Oscar var nokkuð mikið meiddur á síðasta tímabili og vonast Mosfellingar til þess að hann mæti tvíefldur til leiks.





