HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Menn eiga að vera stoltir að klæðast rauðu og svörtu

Menn eiga að vera stoltir að klæðast rauðu og svörtu

Mynd: Víkingur handbolti

Harpix.is hafði samband við Ásgeir Snæ Vignisson leikmann Víkings en Víkingur tryggði sér sæti í efstu deild á síðasta tímabili og Harpixið vildi forvitnast hvernig undirbúningurinn gengi hjá Víkingum.

Nú tekur við nýtt ævintýri við í efstu deild, hversu spenntur ertu fyrir því að hefja tímabilið?

Ég er mjög spenntur fyrir komandi tímabili og ég held að allur hópurinn sé það sem og stuðningsfólk Víkings. Það er búið að vera mikill uppgangur í allri umgjörð í kringum félagið og stjórn og sjálfboðaliðarnir eru búnir að leggja mikið á sig til að gera umhverfið virkilega gott svo að það sé gaman fyrir alla - leikmenn, áhorfendur og andstæðinga. 

Hvað heldur þú að verði stærsta áskorunin fyrir liðið í efstu deild?

Stærsta áskorun okkar Víkinga verður helst að menn með minni eða litla reynslu í efstudeildum gætu lent á smávegis vegg. En ég hef mikla trú á þessum hóp okkar og að þeir verði fljótir að aðlagast. Þetta eru ungir og vinnusamir drengir og virkilega skemmtilegt að vinna með þeim öllum. 

Hvaða markmið hafið þið sett ykkur fyrir komandi tímabil?

Markmiðin okkar eru skýr og það er að halda okkur uppi og við viljum halda félaginu þar. Eins og ég sagði þá er mikill uppgangur í umgjörðinni og það er okkar að halda okkur í efstudeild þar sem Víkingur á heima.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið og hvernig líst þér á hópinn fyrir veturinn?

Undirbúningurinn hefur verið góður og menn eru virkilega samviskusamir og duglegir. Við æfðum virkilega vel og stíft fyrir sumarfrí og það mun hjálpa okkar nýju leikmönnum að komast inn í "conceptið" okkar. Svo erum við að byrja aftur núna þann 14. júlí þannig að það verða stífar æfingar og ég er virkilega bjartsýnn og spenntur að sýna hvað Víkingur getur boðið upp á. Við erum með frábært þjálfarateymi og hópurinn í heild sinni þyrstir í að byrja og festa okkar sess í efstu deild. Víkingur á sér mikla sögu og við viljum halda henni áfram og menn eiga að vera stoltir að klæðast rauðu og svörtu. 

Ritstjórn Harpixins spáði Víkingum 10. sæti í ótímabundnu spánni sinni. Ljóst er að það mun mæða mikið á Ásgeiri Snæ en hann hefur leikið með Val, ÍBV og Selfossi í efstu deild ásamt því að hafa verið atvinnumaður í 2 ár. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?Olísdeild kvenna
  2. Á lista yfir 10 markahæstu leikmennLandslið kvenna
  3. Hættur við að hætta?Olísdeild karla
  4. Harpix.is hefur göngu sína!Olísdeild karla
  5. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla