Breki Hrafn er uppalinn í Fram og hefur verið einn af betri markmönnum deildarinnar síðustu 2-3 tímabil en á síðasta tímabili var hann í 3. sæti yfir besta meðaltal en hann varði 32.7% markvörslu á síðasta tímabili.
Mikið hefur verið skrifað um að Breki muni fara til Benfica en þó ekkert verið staðfest. Leikmaðurinn birti hins vegar mynd af leikvangi knattspyrnuliðsins á samfélagsmiðlum í gær og er að gefa í skyn að nú séu hlutirnir frágengnir.
Íslenski landsliðsmaðurinn Stiven Tobar Valencia yfirgaf herbúðir Benfica í sumar.
Íslenski landsliðsmaðurinn Stiven Tobar Valencia yfirgaf herbúðir Benfica í sumar.





