Það er alltaf fagnaðarefni þegar að landsliðskonur fara út í atvinnumennsku en hún er sú þriðja sem yfirgefur Val í sumar til að fara í mennskuna.
FRÉTT
Gerir tveggja ára samning við Benfica

Mynd: Benfica
Benfica hefur loksins staðfest þau tíðindi að landsliðskonan Lovísa Thompson hefur samið við félagið. Lovísa kemur til Benfica frá Val og gerir tveggja ára samning við Portúgölsku risana en Benfica hefur orðið meistari 5 ár í röð.




