1. Sæti: ÍR
Það kemur engum á óvart að ÍR sé spáð að fara beint aftur upp en ÍR fór alla leið í bikarúrslit á síðasta tímabili. ÍRingarnir eru gríðarlega vel mannaðir en þeir eru með Jökull Blöndal Björnsson og Bernard Kristján Owusu Darkoh sem eru einfaldlega númeri of góðir fyrir grillið. Þeir eru einnig með efnilega leikmenn á borð við Patrek Smára og Alexander Ásgrímsson. Það verður virkilega forvitnilegt að sjá hvernig ÍRingar mæta til leiks í vetur en það hefur líka verið mikið skrifað um að þjálfari liðsins er kominn í borgarstjórn og hugurinn gæti verið annarsstaðar.
2. Sæti: Fjölnir
Fjölnismenn ætla sér stóra hluti á næsta tímabili og hafa verið duglegir að framlengja samninga við sína menn. Gunnar Valur Arason tók við þjálfun liðsins í sumar. Fjölnismenn voru með markahæsta leikmann Grill66 deildarinnar í fyrra en Aðalsteinn Örn skoraði 161 mörk í 21 leik á síðasta tímabili og verður mikil ábyrgð á hans herðum á næsta tímabili. Það verður áhugavert að fylgjast með Fjölni í vetur en félagið hefur verið í töluverðri lægð frá því að það komu upp sterkir árgangar fyrir 8-10 árum.
3. Sæti: Grótta
Grótta var grátlega nálægt því að vinna grillið í fyrra eftir spennandi baráttu við Víking. Þeir hins vegar köstuðu frá sér einvíginu á móti Herði um að fara upp og það hafa líka átt sér miklar breytingar á leikmannahópnum en margir af þeirra bestu mönnum kvöddu liðið í sumar. Þeir hafa hins vegar sótt sér liðsstyrk og Andri Sigfússon tók við þjálfun liðsins. Það verður spennandi að sjá Gróttumenn í vetur.
4. Sæti: Hörður
Þetta er líklega stærsta spurningamerkið. Það hefur verið deilt um hvort að Hörður muni yfirhöfuð taka þátt í vetur og margir lykilmenn eru samningslausir samkvæmt vef HSÍ, einnig hefur spurst að leikmenn liðsins hafi haft samband við önnur félög á landinu og boðið fram krafta sína. Þeir fóru upp fyrir nokkrum árum og hafa verið í mikilli uppbyggingu en nú virðist vera smá niðursveifla fyrir vestan. Ef að allt helst óbreytt og Hörður mætir með lið þá verða þeir alltaf í topp 4.
5. Sæti: Víðir Garði
Nýliðar í grillinu en þeir komust upp úr 2. deildinni á síðasta tímabili. Þeir eru spurningamerki þar sem þeir voru oft í hörku leikjum við lið sem skipuð voru af gömlum kempum en þeir eru með nokkra leikmenn innanborðs sem gætu komið á óvart. Það verður virkilega gaman að sjá Víði spila í grillinu á næsta ári en liðið var stofnað árið 2022. Þeirra besti leikmaður í gegnum tíðina Orfeus Andreou gekk til liðs við HK á miðju tímabili í fyrra og leikur áfram með þeim í vetur.
6. Sæti: Hvíti Riddarinn
6. Sæti: Hvíti Riddarinn
Hvíti Riddarinn er að mestu skipaður yngri leikmönnum Aftureldingar sem eru að taka sín fyrstu skref í meistaraflokk en það leynast reynsluboltar inná milli hjá þeim. Hvíti Riddarinn er líka með lið sem leikur í 2. deildinni. Það verður áhugavert að sjá hverjir munu spila með Hvíta Riddaranum í vetur en þeirra markahæsti leikmaður í fyrra Aron Valur Gunnlaugsson fór á láni til Stjörnunnar á miðju tímabili en hefur snúið aftur í herbúðir Aftureldingar. Það eru nokkur áhugaverð nöfn skráð með samning við félagið á borð við Bergvin Þór Gíslason, Gunnar Malmquist og Þrándur Gíslason sem allir hafa leikið lengi í efstu deild.






