HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Grill66deild karla

ÍR fær liðsstyrk að norðan

ÍR fær liðsstyrk að norðan

Mynd: KA handbolti

ÍR er að styrkja sig fyrir baráttuna í Grill 66 deildinni en liðið er staðráðið í því að komast aftur upp í efstu deild eftir að hafa fallið í vor.

Ef félagaskiptavefur HSÍ er skoðaður má sjá að ÍRingar hafa fengið leikstjórnandann Aron Daða Stefánsson á láni frá KA en lánið gildir út tímabilið. Aron Daði skoraði 8 mörk í 22 leikjum í Olís deildinni með KA í fyrra, en hann var jafnframt einn öflugasti leikmaðurinn hjá 3. flokk félagsins. 

Það verður gaman að sjá ÍR í grillinu á næsta tímabili en þeir hafa haldið öllum sínum leikmönnum fyrir utan Baldur Fritz sem fór í atvinnumennsku. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. ÍR fær liðsstyrk að norðanGrill66deild karla
  2. Þessi lið taka þátt í HafnarfjarðarmótinuOlísdeild karla
  3. Var ákveðinn í að hættaGrill66deild kvenna
  4. Feðgarnir sameinast í KórnumOlísdeild karla
  5. Efnilegur miðjumaður framlengirGrill66deild kvenna