HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Grill66deild kvenna

Var ákveðinn í að hætta

Var ákveðinn í að hætta

Mynd: Afturelding

Harpixið sló á þráðinn til Sebastian Alexandersson þar sem við heyrðum í honum hljóðið fyrir komandi tímabil. Sebastian hefur þjálfað hér á landi í fjöldamörg ár og þarf vart að kynna fyrir lesendum.


Fyrr á þessu ári spurðist það út að Sebastian hefði ákveðið að hætta þjálfun handknattleiks. Önnur varð þó raunin. Í raun má segja að hann hafi þvert á móti hætt, þar sem hann ákvað ekki einungis að taka við sem sérþjálfari meistaraflokki karla og kvenna hjá Haukum, heldur hefur hann einnig tekið við sem meistaraflokksþjálfari kvennaliðs Aftureldingar. 


Spurður út í þessa ákvörðun sagði Sebastian: 


 Ég var búinn að taka ákvörðun um það (að hætta), ákvað síðan þegar Haukar höfðu samband við mig að ég gæti ekki hætt svona “Cold turkey” eins og þeir segja í Bandaríkjunum. Ég ákvað að taka þetta að mér svona til að fasa þetta hægt og rólega út í stað þess að snarstoppa. Svo hafði Afturelding samband við mig og á endanum náðu þeir mér á fund. Ég sagði fyrir fundinn að þeir mættu ekki gera sér neinar vonir en ég skyldi hlusta á þá, síðan bara seldu þeir mér verkefnið. Ég gef þeim bara sérstakt hrós fyrir það, þeir náðu til mín og náðu að sannfæra mig að lokum um það að taka þetta verkefni líka.


Engin leiðindi sem fylgi því að starfa fyrir tvö íþróttalið í einu


Það er ekki algengt að sjá þjálfara taka að sér verkefni við tvö lið í einu og margir hafa velt því fyrir sér hvernig þetta samstarf muni fara fram. 


Ég er 2x í viku hjá Haukum og það er verkefni þar sem ég kem inn á æfingar hjá meistaraflokki karla og kvenna og er að aðstoða þar með einstaklings og tækniþjálfun. Ég kem einnig með ábendingar og ráðleggingar, þar sem óskað er eftir því, til þess að efla einstaklingshæfni leikmanna. Hvort sem það séu skot, tækni, finntur, varnar punktar og öll þau litlu smáatriði sem aðalþjálfari hefur ekki rýmd til að sinna í dag. Hafandi verið með handbolta akademíuna (á Selfossi) í 11 ár þá er ég með gríðarlega reynslu af þessari tegund af þjálfun og var alveg til í það að fara í þetta. Ég tek líka 2x í mánuði afrekshóp yngri flokka hjá Haukum sem er þá viðbót við afreksstarfið sem þeir eru með svo að þeir (iðkendur afrekshópsins) fái einnig annan vinkil“.


Sebastian segir það ekki truflandi að starfa fyrir 2 félög í einu og ekki hafi verið nein læti sem fylgdu því að taka við meistaraflokksþjálfun Aftureldingar eftir að hafa skrifað undir hjá Haukum.


 „ Það er ekkert truflandi við það að starfa fyrir 2 félög, þetta er allt gert í samráði á milli félaganna. Í fyrsta lagi þá þurfti ég að fá leyfi frá Haukum til að taka við verkefninu hjá Aftureldingu og Afturelding þurfti líka að samþykkja að ég mætti starfa hjá Haukum þannig að þetta er allt gert í sátt og samlyndi á milli félaganna


Öðruvísi aðstæður en það sem hann hefur fengið að venjast


Sebastian segist spenntur fyrir komandi tímabili og horfir nokkuð bjartur fram á veginn. Í fyrsta sinn á ferlinum er hann að taka að sér þjálfun meistaraflokks hjá liði þar sem hann þarf ekki að huga að öðru en að þjálfa. 


Mér líst rosa vel á þetta, öll leikmannamál eru í höndum félagsins. Þeir sjá alveg um öll samskipti við HSÍ, leikjaniðurröðun og sjá um að bóka liðið á æfingamót. Þeir sjá í raun og veru um allt fyrir mig, það er svolítið skemmtilegt að upplifa það. Ég þarf bara að mæta og þjálfa. Það er öflugt bakland sem ég hef fengið hjá félaginu og þeir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að hafa þetta sem best. 

Mér finnst þetta mjög spennandi hópur. Klúbburinn ætlar sér mikið og það verður mjög gaman að leggja sitt á vogaskálarnar, svo er bara spurning hvort það takist. Stefnan er að koma meistaraflokki kvenna í efstu deild við fyrsta mögulega tækifæri og við erum tilbúin að leggja mikið á okkur til að koma liðinu þangað. Hvort mér tekst það í fyrstu tilraun eða síðar kemur í ljós en markmiðið mitt er að veita allavega þeim liðum sem eru í deildinni harða keppni að því að fara upp. Ég hef aldrei tekið þátt í þessu til annars en að ná árangri, ég fer stundum fram úr mér en ég ætla mér alltaf mikið.


Við þökkum Sebastian Alexanderssyni fyrir viðtalið. 


Grill 66 deild kvenna hefst 6. september í Myntkaup höllinni, þar mun lið Aftureldingar taka á móti HK 2. 


Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Mun FH fá Garðar á láni?Olísdeild karla
  2. Reyndi Valur að fá Ísak frá Stjörnunni?Olísdeild karla
  3. Breki semur við BenficaErlendar fréttir
  4. Tekur stórskyttan fram skónna ?Olísdeild karla
  5. Fetar í fótspor Gústa JóErlendar fréttir