HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Landslið karla

Leika við Ísrael eftir tap gegn Noregi

Leika við Ísrael eftir tap gegn Noregi

Mynd: HSÍ

Íslenska U20 karla landsliðið mætti Noregi í dag í leik um að keppa um 9-12 sætið á Evrópumótinu. 

Leikurinn var jafn til að byrja með og leiddi íslenska liðið með tveimur mörkum þegar gengið var til hálfleiks 14-12. Í seinni hálfleik átti Noregur góðan kafla þegar að um 10 mínutur voru liðnar af seinni hálfleiknum og náðu þriggja marka forskoti sem þeir létu aldrei af hendi og unnu að lokum með fjórum mörkum 31-27. Svekkjandi tap hjá okkar mönnum sem munu spila við Ísrael um 13-16 sætið á mótinu. 

Markaskorar:

Ágúst Guðmundsson - 6 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 6 Mörk
Daníel Montoro - 3 Mörk
Andri Erlingsson - 3 Mörk
Harri Halldórsson - 2 Mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson - 2 Mörk
Magnús Dagur Jónatansson - 2 Mörk
Birgir Leó Stefánsson - 1 Mark
Bessi Teitsson - 1 Mark
Antoine Óskar Pantano - 1 Mark

Markvarsla:

Alexander Ásgrímsson - 11 Varðir 26.83%
Jens Sigurðarson - 1 Varin 50%

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm sem gætu komið heim úr atvinnumennskuErlendar fréttir
  2. Mun FH fá Garðar á láni?Olísdeild karla
  3. Jónas heldur útOlísdeild karla
  4. Reyndi Valur að fá Ísak frá Stjörnunni?Olísdeild karla
  5. Frá Koldstad í Úlfarsárdalinn?Olísdeild karla