HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Erlendar fréttir

Íslensku liðin eiga góðan möguleika í Evrópudeildinni

Íslensku liðin eiga góðan möguleika í Evrópudeildinni

Mynd: EHF

Það var dregið í riðla í Evrópukeppninni í dag og voru Valur og FH meðal þeirra sem voru í pottinum. Það er óhætt að segja að íslensku félögin voru heppin með drátt en þau eiga bæði raunhæfa möguleika á að komast upp úr sínum riðli. Gjaldkerar félagana hljóta samt að blóta því að ekkert stórlið var dregið í riðil með íslensku félögunum.

FH fer til Spánar, Frakklands og Portúgals á meðan að Valur fer til Danmerkur, Ungverjalands og Slóveníu. 

Riðlakeppni Evrópudeildarinnar hefst í lok September og lýkur í Desember. 

Harpix.is óskar félögunum báðum góðs gengis og hvetur handboltaáhugafólk á að fjölmenna á leikina og hjálpa liðunum

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Mun FH fá Garðar á láni?Olísdeild karla
  2. Reyndi Valur að fá Ísak frá Stjörnunni?Olísdeild karla
  3. Breki semur við BenficaErlendar fréttir
  4. Jónas heldur útOlísdeild karla
  5. Fetar í fótspor Gústa JóErlendar fréttir