Ritstjórn · 23. júlí 2026 · Olísdeild karla
Stefán Árnason var látinn fara frá Handknattleiksdeild Aftureldingar í vor eftir vonbrigðar tímabil en félagið lenti í 6. sæti deildarinnar og datt út í 8-liða úrslitum gegn Haukum. Stefán var á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari liðsins en hann hafði starfað hjá félaginu í 3 ár þar á undan sem aðstoðarþjálfari Gunnars Magnússonar og verið í kringum yngri flokka félagsins.
Stefán gerði upp tímann sinn í Mosfellsbæ í færslu á samfélagsmiðlum.
,,Fjögur ógleymanleg ár. Trúlega það besta sem ég hef gert í þjálfun á rúmlega 20 ára ferli. Stórkostlegir leikmenn. Frábærir þjálfarar sem ég fékk að vinna með. Gerðum magnaði hluti og ég skil við UMFA á töluvert betri stað en það var á áður en ég kom. Þetta allt situr eftir. Núna er nýtt verkefni tekið við."