Þórsarar hafa verið duglegir að styrkja sig fyrir átökin í Olís deildinni en hann er fimmti leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.
FRÉTT
Færir sig í þorpið

Mynd: Þór handbolti
Jóhann Geir Sævarsson hefur snúið aftur til uppeldisfélagsins Þórs en hann kemur frá erkifjendum þeirra í KA þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Jóhann spilaði 21 leik með KA mönnum í fyrra og skoraði 7 mörk.





