Brynjar Freyr er hægri skytta og Valur Fannar er línumaður.
„Við erum afar ánægð með að Valur og Bjarni verði áfram hluti af Fjölni. Báðir hafa þeir sýnt miklar framfarir, mikinn metnað og eiga bjarta framtíð fyrir sér. Við hlökkum til að fylgjast með þeim taka næstu skref í meistaraflokki og leggja sitt af mörkum til liðsins á komandi árum.“ Sagði nýráðinn þjálfari liðsins Gunnar Valur í tilkynningunni.






