Íslenska liðið tók strax stjórn á leiknum og leiddi í hálfleik með 9 mörkum 19-10. Það varð engin breyting á því í seinni hálfleik og uppskar liðið á endanum fjórtan marka stórsigur 39-25.
Freyr Aronsson fór fyrir liðinu en hann skoraði 10 mörk.
Markaskorarar:
Freyr Aronsson - 10 Mörk
Alex Unnar Hallgrímsson - 7 Mörk
Logi Finnsson - 6 Mörk
Ómar Darri Sigurgeirsson - 4 Mörk
Brynjar Narfi Arndal - 3 Mörk
Gunnar Róbertsson - 3 Mörk
Sigurður Atli Ragnarsson - 3 Mörk
Matthías Dagur Þorsteinsson - 1 Mark
Anton Frans Sigurðsson - 1 Mark
Bjarki Snorrason - 1 Mark
Markvarsla:
Tölfræðin var eitthvað að stríða serbunum og tölfræðin með markvörslu ekki aðgengileg. Fréttin verður uppfærð.





