Þá er komið að því að spá í spilin í Grill 66 deild kvenna. HK vann deildina í fyrra eftir spennandi baráttu við Gróttu. Grótta spilaði við Stjörnuna um sæti í deild þeirra bestu og tapaði að lokum í oddaleik. Það var hins vegar ákveðið á ársþingi HSÍ að stækka Olís Deild kvenna í 10 lið og því fékk Grótta sæti í deildinni að lokum. Í þessari spá munum við einungis fjalla um þau lið sem geta farið upp og munum þar af leiðandi ekki tala um ungmennaliðin þar sem að þau geta breyst mikið á milli leikja.
1. Sæti: Selfoss
Selfoss er fyrirfram með lang besta liðið í þessari deild, en þær féllu úr efstu deild í fyrra. Selfoss missti sinn atkvæðamesta leikmann Miu Syverud og systur hennar Mörtu sem héldu báðar til Noregs en þjálfarinn Eyþór Lárusson ætlar sér aftur upp með liðið. Í herbúðum Selfoss eru leikmenn á borð við Perlu Ruth, Huldu Dís, Hörpu Valey og Emilíu Ósk. Það er töluverður gæðamunur á efstu deild og grillinu og mun líklega mesta áskorun Selfyssinga á tímabilinu vera að mæta með hausinn rétt skrúfaðann á.
2. Sæti: FH
FH eru mjög stórhuga og ætla sér upp í efstu deild á næstu árum. Það hafa verið talsverðar breytingar en Sigurjón Friðbjörn hefur tekið við þjálfun liðsins og Sylvía Blöndal er kominn aftur í FH eftir að hafa verið að spila í Danmörku. Szonja Szöke er áfram í markinu en hún er einn allra besti markmaður landsins. Hins vegar misstu FHingar Thelmu Dögg sem var þeirra lang markahæsti leikmaður á síðasta tímabili og mun það líklega falla á herðar Sylvíu að skora þau mörk. FH verður alltaf í toppbaráttunni.
3. Sæti: Afturelding
Það hafa verið miklar breytingar í Mosfellsbæ. Andrés Gunnlaugsson og Örn Ingi Bjarkason hættu með liðið og Sebastian Alexandersson tók við þjálfun þess. Afturelding hefur verið duglegt að sækja sér nýja leikmenn og eru með Katrín Helgu Davíðsdóttur sem var lang markahæst í Grillinu á síðasta tímabili. Mosfellingar hafa gefið það út að þeir ætli sér að vera með lið í efstu deild kvenna en það er hins vegar er mikið verk að vinna fyrir Sebastian. Liðið var næst neðst á síðasta tímabili með jafn mörg stig og FRAM2 sem voru neðstar. Það verður áhugavert að fylgjast með Mosfellingum í vetur og sjá hvort að þeir ætli að standa við stóru orðin.
4. Sæti: Fjölnir
Það hafa líka verið töluverðar breytingar hjá Fjölni en Þór Guðmundsson tók við þjálfun liðsins af Gunnari Val Arasyni sem tók við karla liðinu. Fjölniskonur lentu í 5. sæti á síðasta tímabili og ætla sér að enda ofar á þessu tímabili. Berglind Benediktsdóttir fer fyrir liðinu en það eru líka ungir og efnilegir leikmenn að koma upp í Grafarvoginum og virðist Fjölnir vera eina liðið sem er með pennan á lofti síðustu daga. Ekki sofa á Fjölni í vetur.
Það verður virkilega áhugavert að fylgjast með Grill66 deild kvenna í vetur eftir að efsta deild var stækkuð. Þrjú af fjórum liðum sem geta farið upp hafa skipt um þjálfara og svo eru líka ungir og efnilegir leikmenn að spila með Uliðunum. Lykilleikmenn verða að mæta til leiks ef að liðin ætla að eiga séns en Harpixinu grunar að þetta verður mjög þéttur pakki. Harpixið mun gefa út nánari spá fyrir allar deildir þegar nær dregur móti.
FRÉTT
Grill66 deild kvenna: Ótímabær spá

Mynd: HSÍ





