HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Þetta er auðvitað sá tími árs þar sem menn æfa til að fá harðsperrur

Þetta er auðvitað sá tími árs þar sem menn æfa til að fá harðsperrur

Mynd: mbl.is/Karítas

Harpix.is sló á þráðinn hjá Einari Baldvini Baldvinssyni leikmanni Aftureldingar og spurði hann út í breytingarnar sama hafa átt sér stað hjá félaginu og hvernig undirbúningur næsta tímabils hefur gengið.

Nú hafa átt sér stað töluverðar breytingar á leikmannahópnum og í þjálfarateyminu, við hverju má búast frá Aftureldingu á næsta tímabili?

Það má búast áfram við því að Afturelding verði að berjast um allt sem er í boði. En ég veit að bærinn er hungraður í árangur og við munum leggja hjarta í sál í alla leiki fyrir Mosó. 

Hver eru þín persónulegu markmið fyrir næsta tímabil?

Mitt markmið er alltaf að gera betur en tímabilið á undan. En mig langar líka að vinna titil. 

Hvernig líst þér á leikmannahópinn?

Mér líst mjög vel á leikmannahópinn. Ég mun auðvitað sakna þeirra sem hafa kvatt okkur en mér líst mjög vel á framtíðina með nýju leikmönnunum sem hafa komið til okkar og yngri strákarnir sem eru að taka sín fyrstu skref líta vel út. Hópurinn er með fullkomna blöndu af ungu blóði og leikmönnum með meiri reynslu. 

Hvernig hefur undirbúningurinn fyrir næsta tímabil gengið?

Við hittumst aðeins fyrir frí með nýju þjálfurunum og það gekk mjög vel en þetta er auðvitað sá tími árs þar sem menn æfa til að fá harðsperrur. Við byrjum að æfa aftur í næstu viku og það verður gaman að fá að hitta strákana og hlaupa og taka planka saman.

Hvernig hafa nýju þjálfararnir komið inn í þetta?

Ég er spenntur fyrir þessu teymi. Hrannar er búinn að standa sig vel í þjálfun síðustu ár og er kominn í kringum A landsliðið. Diddi er einnig búin að gera góða hluti í þjálfun og hefur auðvitað mikla reynslu sem leikmaður og það er ekkert verra að hafa silfurverðlaunahafa í hópnum. Þetta er góð blanda þarna á milli eins og er hjá leikmannahópnum. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla