HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Hver verður markahæst í Olís deild kvenna?

Hver verður markahæst í Olís deild kvenna?

Mynd: vísir/Diego

Harpixið heldur áfram að hita upp fyrir Olís deild kvenna og hefur tekið saman lista yfir þær sem eru líklegastar að verða markahæstar á næsta tímabili. Listinn er ekki settur upp í neinni sérstakri röð. 

Berta Rut Harðardóttir

Berta Rut er kominn aftur heim í Hauka úr atvinnumennskunni. Berta var einn besti leikmaður deildarinnar áður en hún fór út í atvinnumennsku og kann svo sannarlega að skora mörk. Hún getur fintað sig í gegn, skotið fyrir utan og lyft sér upp í loftið og það verður erfitt fyrir varnarmenn deildarinnar að mæta henni. Það verður gaman að sjá hana aftur í deildinni en Haukarnir eru með ógnarsterka útilínu. 

Sara Dögg Hjaltadóttir

Það kemur engum á óvart að Sara Dögg sé á þessum lista. Sara skoraði 207 mörk í 21 leik í deildinni á síðasta tímabili og var 53 mörkum á undan öðru sætinu. Hún algjörlega límið í sóknarleik ÍR og vann sér inn verðskuldað sæti í íslenska landsliðinu. Það verður áhugavert að sjá hvort að Sara nái öðru svona stórkostlegu tímabili en það er komið nýtt þjálfarateymi í Breiðholtinu. Sara getur skotið fyrir utan og fintað sig í gegn. 

Andrea Jacobsen

Andrea Jacobsen er að koma aftur heim til Íslands eftir 8 ár í atvinnumennskunni. Hún er þaulreynd landsliðskona sem varð Þýskur meistari í vetur. Hún kann svo sannarlega að skora mörk í öllum regnboganslitum og það verður gaman að sjá hana spila á Íslandi aftur. Það verður algjör martröð að mæta útilínu ÍBV í vetur. 

Sandra Erlingsdóttir

Sandra Erlingsdóttir var valinn besti sóknarmaðurinn og mikilvægasti leikmaðurinn á uppskeruhátíð HSÍ eftir síðasta tímabil. Sandra var heilinn í sóknarleik ÍBV og skoraði 154 mörk í 20 leikjum og fór með ÍBV alla leið í úrslita einvígið. Það má ekki gleyma sér í eina sekúndu þegar Sandra er með boltann því hún prjónar sig í gegn eða skýtur framhjá þér ef hún sér glufu. Einn allra besti leikmaður deildarinnar. 

Birna Berg Haraldsdóttir

Birna Berg er ein allra besta skytta deildarinnar. Hún skoraði 128 mörk í deildinni í fyrra og getur klippt á snöruna þegar að sókn ÍBV þarf á því að halda. Hún dregur mikið til sín og getur skorað nánast hvaðan sem er á vellinum og ef hún tekur ekki skotið sjálf þá býr hún til færi fyrir aðra. Það verður áhugavert að sjá útilínu ÍBV næsta vetur en ljóst er að eyjakonur þurfa ekki að hafa áhyggjur af markaskorun. 

Olís deild kvenna hefst eftir 54 daga og mun Harpix.is halda áfram að hita upp fyrir hana. Deildin er gríðarlega jöfn og það verður spennandi að sjá hvaða lið mun standa uppi sem sigurvegari. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla