HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Hver verður stoðsendingarhæstur í Olís deild karla?

Hver verður stoðsendingarhæstur í Olís deild karla?

Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson

Harpix.is heldur áfram að hita upp fyrir Olís deild karla sem hefst eftir 52 daga. Harpixið hefur tekið saman lista yfir þá leikmenn sem eru líklegastir til að verða stoðsendingarhæstir á næsta tímabili. Listinn er ekki settur upp í neinni sérstakri röð. 

Bjarni Ófeigur Valdimarsson

Það þarf ekki að koma á óvart að Bjarni Ófeigur sé á þessum lista. Hann var með 209 sköpuð færi yfir allt síðasta tímabil sem skilaði sér í 152 stoðsendingum fyrir KA. Bjarni er með gott auga fyrir spili og er algjör hausverkur fyrir varnarmenn afþví ef þú mætir honum ekki þá skýtur hann en ef þú kemur út þá sér hann opnun. Hann er með góða leikmenn í kringum sig og mun klárlega vera ofarlega á lista yfir stoðsendingar. 

Arnór Snær Óskarsson

Grasið er grænt, himininn er blár og Arnór Snær kemur liðsfélögunum sínum í góðar stöður. Arnór var valinn besti sóknarmaður deildarinnar og mikilvægasti leikmaður deildarinnar á síðasta tímabili en hann var með 114 stoðsendingar fyrir Valsmenn. Arnór spilar oft eins og miðjumaður í skyttunni en hann er með augu í hnakkanum. Það verður gaman að sjá Arnór með Valsmönnum í vetur en stærsta breytan hér er hvort að hann muni hvíla eitthvað í deildinni sökum þess að Valsmenn eru að taka þátt í Evrópukeppninni. 

Árni Bragi Eyjólfsson

Árni Bragi fer alltaf undir radarinn þegar það kemur að leggja upp fyrir liðsfélagana sína. Árni var með 100 stoðsendingar á síðasta tímabili sem voru mikil vonbrigði fyrir Mosfellinga. Árni er með gott auga fyrir spili og er oft látinn velja þegar að Afturelding er manni fleirri í sókninni. Árni var þekktur fyrir gott samspil við Ihor Kopyshynskyi og verður það áhugavert að sjá hvort að hann finni Hákon Daða jafn vel í færum. Árni Bragi er samningslaus en samkvæmt heimildum Harpixins þá er hann í viðræðum við Mosfellinga um framlengingu á samningum sínum. 

Freyr Aronsson

Freyr Aronsson mætti í deildina í fyrra og tók gjörsamlega yfir. Hann var allt í öllu í sóknarleik Hauka á síðasta tímabili og var með 106 stoðsendingar. Freyr mun mæta reynslunni ríkari og ári eldri í haust og mun líklega halda áfram að vera óstöðvandi. Haukarnir hafa sótt Sigurð Jefferson og Harpixinu grunar að Freyr muni finna hann nokkuð oft í vetur. 

Gunnar Róbertsson

Gunnar Róbertsson er alt muligt mand. Hann getur skotið fyrir utan, fintað sig í gegn og lyft sér upp fyrir utan en það sem fólk á það til að gleyma er að hann er með gífurlega næmt auga fyrir spili. Hann var með 91 stoðsendingu í fyrra og mun eflaust toppa það í ár með komu Jón Ásgeirs og Tjörva í Val. Það má ekki sofna á verðinum þegar Gunnar er með boltann en hann getur komið liðsfélögunum sínum í virkilega góðar stöður ef hann tekur ekki skotið sjálfur. 

Harpix.is mun halda áfram að hita upp og  fjalla um Olís deild karla sem hefst þann 3. september. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla