HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Landslið karla

Spánverjar sterkari

Spánverjar sterkari

Mynd: HSÍ

Íslenska U20 landsliðið mætti Spánverjum í gær í sínum öðrum leik á Evrópumótinu. Leikurinn var jafn til að byrja með en á síðustu mínutum fyrri hálfleiks voru spánverjar betri og leiddu 12-16 þegar gengið var til búningsklefa. 

Íslensku strákarnir mættu betur til leiks í seinni hálfleik og skoruðu fimm í röð og komust í 17-16 en þá kveiktu spánverjar aftur á sér og unnu að lokum fimm marka sigur 28-33 og svekkjandi tap hjá strákunum okkar var niðurstaðan.  Íslenska liðið spilar næst við Lettland á morgun klukkan 08:55. 

Markaskorarar Íslands: 

Ágúst Guðmundsson - 12 Mörk
Stefán Magni Hjartarson - 3 Mörk
Harri Halldórsson - 2 Mörk
Ingvar Dagur Gunnarsson - 2 Mörk
Andri Erlingsson - 2 Mörk
Dagur Leó Fannarsson - 2 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 2 Mörk
Jökull Blöndal Björnsson - 2 Mörk
Bessi Teitsson - 1 Mark

Markvarsla:

Alexander Ásgrímsson - 12 Varin 29.27%

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Fimm leikmenn sem ættu að vera í efstu deild karlaGrill66deild karla
  2. Okkar markmið er að komast í úrslitakeppninaOlísdeild karla
  3. Snýr aftur heimOlísdeild karla
  4. Fimm leikmenn sem gætu farið í atvinnumennsku eftir tímabiliðOlísdeild karla
  5. Stiven verður leikmaður ValsOlísdeild karla