Eins og handkastið sagði frá í vikunni þá stefnir allt í að að Eiður Rafn Valsson sé á leið til FH frá Fram en samkvæmt þeim þá hafði leikmaðurinn óskað eftir því að fá að fara frá Fram vegna persónulegra ástæðna þrátt fyrir að vera nýbúinn að skrifa undir samning til 2029. Fljótlega eftir fundinn með Fram hafi formaður FH haft samband við Fram og óskað eftir því að fá leikmanninn til sín.
Harpix.is hefur hins vegar heimildir fyrir því að þetta sé ekki í fyrsta skipti í sumar sem svipuð atburðarás á sér stað, en fyrr í sumar hafði Stefán Magni Hjartarson óskað eftir því að fá að fara frá Aftureldingu og stuttu seinna hafi fimleikafélagið haft samband við forráðarmenn Aftureldingar sem voru allt annað en sáttir við vinnubrögð FHinga sem voru búnir að vera að ræða við unglingalandsliðsmanninn. Þetta eru ansi áhugaverðar tilviljanir en FH er í leit af hægri hornamönnum eftir að Birgir Már fór í atvinnumennsku í sumar og Kristófer Máni flutti erlendis í nám.
FRÉTT
Reyndi FH að fá Stefán Magna?

Mynd: Egill Bjarni Friðjónsson





