HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Olís deild kvenna: Ótímabær spá - Seinni hluti

Olís deild kvenna: Ótímabær spá - Seinni hluti

Mynd: HK

Olís deild kvenna hefst eftir 61 dag eða þann 5. September. Í tilefni þess hefur ritstjórn Harpix.is tekið sig saman og búið til ótímabæra spá fyrir deildina. Hér er neðri hluti deildarinnar.


6. Sæti: KA/Þór

Kannski eitt mest spennandi lið Olís deildarinnar á næsta tímabili. KA/Þór endaði síðasta tímabil í 6.sæti deildarinnar og það mun ekki vera breyting á því. Aldís Ásta Heimisdóttir er gengin aftur til liðsins eftir að hafa spilað síðustu tímabil í Svíþjóð með Skara. Þær hafa einnig sótt markmanninn Ingibjörgu Hauksdóttur frá Flint Tonsberg í Noregi sem kemur í stað Bernadett Leiner sem hefur samið í Kýpur, Agatha Kjærbek Djurhuus frá VB í Færeyjum og Jóhan Rúnadóttur frá Kyndil í Færeyjum. Tinna Valgerður Gísladóttir er barnshafandi og mun því ekki spila fyrr en í fyrsta lagi eftir áramót, Susanne Pettersen samdi við Handball Leno í Ítalíu og Trude Blestrud Håkonsen samdi við Stjörnuna. Þarna á ferð er hreinlega of mikill missir í markaskorun fyrir þær til að komast í efstu fimm sætin, en þær þrjár voru markahæstu leikmenn liðsins á síðasta tímabili.


7. Sæti: ÍR

ÍR náðu sínu besta árangri kvennaliðs þegar þær enduðu í 4.sæti í fyrra. Þær misstu þó Katrínu Tinnu Jensdóttur til Danmerkur þar sem hún mun spila með Horsens og Guðrún Maryam Rayadh samdi við nýliða Víkings. Elísa Helga Sigurðardóttir og Grétar Áki Andersen fóru einnig frá félaginu í sumar. Það eru því breytingar hjá liðinu og ljóst er að Sara Dögg Hjaltadóttir þarf að eiga annað yfirburðar tímabil til að halda þeim á floti.


8. Sæti: Grótta

Grótta endaði í 2.sæti í Grill 66 deildinni í fyrra og fór í umspil gegn Stjörnunni þar sem þær rétt töpuðu eftir æsispennandi viðureignir. Þrátt fyrir tap þá munu þær spila í Olís deildinni vegna fjölgun liða. Grótta býr yfir gæða miklu liði og fer þar fremst í flokki hún Ída Margrét Stefánsdóttir. Ída Margrét skoraði 142 mörk í 21 leik í Grill deildinni í fyrra. Þær hafa ekki enn misst einn leikmann og hafa bætt við sig þeim Evu Björk Davíðsdóttur frá Stjörnunni, Arnbjörgu Berthu Kristjánsdóttur frá Víking og Elsu Björg Guðmundsdóttur frá KA/Þór. 


9. Sæti: HK

HK gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Grill 66 deild kvenna í fyrra með Tinnu Ósk Gunnarsdóttur í fararbroddi. Þær eru með ungt og skemmtilegt lið sem eru líklegar til alls. Þær hafa sótt eina styrkingu en markmaðurinn Elísabet Millý Elíasardóttir samdi við liðið fyrir komandi tímabil. Það verður spennandi að fylgjast með HK.


10. Sæti: Víkingur

Víkingur endaði í 3.sæti Grill 66 deildarinnar í fyrra með 20 stig. Þær eru eins og er með 9 leikmenn á samning og sögusagnir eru á lofti um að þær muni ekki taka þátt á komandi tímabili. Það verður að segjast eins og er að þær eru hreinlega ekki með samkeppnishæft lið á þessum tímapunkti og því enda þær í neðsta sæti. 

Auður Brynja Sölvadóttir og Hafdís Shizuka Iura eru hættar og þær Valgerður Elín Snorradóttir, Andrea Ósk Þorkelsdóttir, Arnbjörg Bertha Kristjánsdóttir og Mattý Rós Birgisdóttir eru allar búnar að semja við önnur lið. Víkingur hefur sótt Guðrúnu Maryam Rayadh frá ÍR og Þórdísi Iddu Ólafsdóttur frá Fram.


Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?Olísdeild kvenna
  2. Á lista yfir 10 markahæstu leikmennLandslið kvenna
  3. Harpix.is hefur göngu sína!Olísdeild karla
  4. Hættur við að hætta?Olísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla