Það hefur verið meiri hreyfing í félagaskiptaglugganum í sumar en á síðasta tímabili og því hefur Harpix.is tekið saman 5 bestu félagaskiptin í sumar í Olís deild kvenna.
1. Andrea Jacobsen í ÍBV
Þetta eru án vafa stærstu félagaskiptin í Olís deild kvenna í sumar en Andrea hefur verið í atvinnumennsku síðastliðin 8 ár og varð Þýskalandsmeistari með Blomberg Lippe í vetur. Andrea kemur með gríðarlega reynslu til eyja og gæti verið síðasta púslið sem vantaði og mun ÍBV klárlega gera atlögu að íslandsmeistaratitlinum á næsta tímabili.
2. Berta Rut Harðardóttir í Hauka
Berta Rut kom aftur heim í Hauka í sumar eftir að hafa verið í atvinnumennsku í fjögur ár. Þetta er örvhent skytta sem getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi og var einn allra besti leikmaður deildarinnar áður en hún hélt út í atvinnumennskuna. Ljóst er að Haukakonur munu leita mikið til hennar í vetur þegar það þarf að skora mörkin.
3. Lena Margrét Valdimarsdóttir í Fram
Lena Margrét snýr aftur í úlfársárdalinn eftir stutt stopp í atvinnumennskunni. Þetta er örvhent skytta sem þorir að taka á skarið í sóknarleiknum. Lena var einn af burðarásum framliðsins áður en að hún hélt út í atvinnumennsku og er ljóst að hún muni styrkja frammara mikið.
4. Eva Björk Davíðsdóttir í Gróttu
Eva Björk snéri aftur heim í Gróttu í sumar eftir að hafa verið í Garðabænum síðastliðin 6 ár. Eva átti fast sæti í landsliðinu og spilaði m.a í Noregi og Danmörku sem atvinnumaður. Það er hægt að færa rök fyrir því að Eva Björk sé ástæða þess að Stjarnan hefur haldið sæti sínu í deild þeirra bestu síðastliðin tvö tímabili og er það nokkuð ljóst að hún muni koma til með styrkja Gróttu gríðarlega.
5. Valgerður Elín Snorradóttir í Stjörnuna
Valgerður Elín var lang besti leikmaður Víkings í Grill 66 deild kvenna á síðasta tímabili þar sem hún skoraði 132 mörk í 21 leik. Flest ef ekki öll lið í efstu deild voru á eftir henni og að lokum samdi hún við Stjörnuna. Þetta er leikmaður sem getur skotið fyrir utan og fintað sig í gegn. Hún er einungis 18 ára gömul og því ljóst að um einn efnilegasta leikmann landsins er um að ræða. Verður fróðlegt að sjá hana í efstu deild.
FRÉTT
Olís deild kvenna: 5 bestu félagaskipti sumarsins ( hingað til )

Mynd: mbl.is/Jon Forberg





