1. Perla Ruth Albertsdóttir
Selfoss átti Perlu alveg inni á síðasta tímabili en hún var að koma tilbaka eftir barnsburð. Þetta er leikmaður sem getur gert gæfumunin fyrir liðið en hún á fjöldan allan af landsleikjum og hefur gríðarlega reynslu. Perla mikill leiðtogi og mun drífa þetta Selfoss lið áfram. Perla hefur einnig leikið með Fram í efstu deild.
2. Katrín Helga Davíðsdóttir
Katrín Helga kann að skora mörk. Hún hefur leikið með Aftureldingu allan sinn feril og gerði 204 mörk á síðastliðnu tímabili fyrir Aftureldingu. Hún hefur sýnt það og sannað að hún geti spilað í efstu deild og eru eflaust mörg lið sem gætu nýtt hennar þjónustu. Katrín mun skipta sköpum í vetur ef að Afturelding ætlar sér einhverja hluti en síðasta tímabil olli miklum vonbrigðum fyrir Mosfellinga.

3. Berglind Benediktsdóttir
Berglind snéri aftur í uppeldisfélagið sitt Fjölni fyrir síðasta tímabil sem var mikill happafengur fyrir félagið. Hún skoraði 128 mörk og bar uppi sóknarleik liðsins í vetur. Berglind hefur gríðarlega mikla reynslu en hún hefur spilað með bæði Haukum og Fram í efstu deild. Berglind er mikilvæg á báðum endum vallarins fyrir Fjölni og verður gaman að sjá hvernig hún og fjölniskonur mæta til leiks í haust.

4. Hulda Dís Þrastardóttir
Hulda Dís skoraði 91 mark fyrir Selfoss í efstu deild á síðasta tímabili. Hún er reynslumikill leikmaður sem mun mikið mæða á ætli Selfoss sér aftur að komast upp í efstu deild. Hulda hefur einnig leikið með Val í efstu deild hér á landi og er ljóst að Selfoss muni leita mikið til hennar og Perlu í vetur til að taka á skarið en Mia Kristin Syverud markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili verður ekki áfram í herbúðum félagsins.
5. Sylvía Björt Blöndal
Sylvía snéri aftur heim í FH eftir veru erlendis í námi en þar áður hafði hún leikið með Aftureldingu í Mosfellsbæ. Sylvía skoraði 120 mörk fyrir Mosfellinga í efstu deild árið 2022 og 157 mörk í grillinu árið eftir. Þetta er leikmaður sem á að bera uppi sóknarleik FH en félagið tilkynnti í dag að markahæsti leikmaðurinn í fyrra Thelma Dögg hafi yfirgefið félagið til að flytja erlendis. Það verður virkilega gaman að sjá hvernig Sylvía mætir til leiks en það er óskiljanlegt að Mosfellingar hafi ekki reynt að fá hana til liðs við sig aftur til að styrkja sig í baráttunni um að komast upp í deild þeirra bestu.