HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Einar Örn verður áfram í Kaplakrika

Einar Örn verður áfram í Kaplakrika

Mynd: mbl.is/Óttar Geirsson

Leikstjórnandinn Einar Örn Sindrason hefur framlengt veru sína í Kaplakrika um tvö ár eða til ársins 2028. Einar Örn er uppalinn hjá FH og hefur leikið með félaginu allan sinn feril. Einar er 25 ára gamall og skoraði 52 mörk og gerði 48 stoðsendingar á síðasta tímabili hjá FH. Aron Pálmarsson þjálfari FH er frændi Einars. 

Ljóst er að Einar mun fá mun stærra hlutverk hjá FH í vetur en bróðir hans Garðar Ingi Sindrason yfirgaf félagið í sumar og hélt út í atvinnumennsku til Gummersbach. 

FH hefur ekki ennþá tilkynnt að Einar hafi framlengt samningnum sínum við félagið en samningurinn tók gildi þann 01.07 samkvæmt vef HSÍ.

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  2. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  3. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  4. Livey sér um útsendingar handboltapassans í veturErlendar fréttir
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora