HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Landslið karla

Svekkjandi tap og leika um 5-8 sæti

Svekkjandi tap og leika um 5-8 sæti

Mynd: HSÍ

Íslenska U18 landsliðið á ekki lengur séns á verðlaunapalli eftir svekkjandi tap gegn Þýskalandi í 8-liða úrslitum. 

Þýska liðið var með yfirhöndina strax í byrjun en það féll ekkert með íslenska liðinu í dag. Þjóðverjar leiddu með einu marki í hálfleik en í lok fyrri hálfleiks fékk Logi Finnsson rautt. Seinni hálfleikurinn var framhald af þeim fyrri og ekkert féll með íslenska liðinu. Freyr Aronsson fékk rautt spjald í seinni hálfleiknum og lauk leiknum með tveggja marka tapi 33-31.

Íslenska liðið mætir Frökkum núna í leik um 5-8 sæti á mótinu.

Markaskor Íslands:
Freyr Aronsson 6 mörk
Bjarki Snorrason 5 mörk
Ómar Darri Sigurgeirsson 5 mörk
Alex Unnar Hallgrímsson 4 mörk
Gunnar Róbertsson 4 mörk
Brynjar Narfi Arndal 3 mörk
Patrekur Smári Arnarson 2 mörk
Anton Frans Sigurðsson 2 mörk
Í markinu varði Anton Máni Fransisco 6 skot (30%) og Sigurmundur Gísli Unnarsson 5 skot (25%).

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Skórnir komnir af hillunni?Olísdeild karla
  2. ÍR fær liðsstyrk frá HlíðarendaGrill66deild karla
  3. Fimm bestu útlendingarnir sem hafa spilað á ÍslandiOlísdeild karla
  4. Eru nýliðarnir að fá liðsstyrk frá Ásvöllum?Olísdeild karla
  5. Ekkert verður úr heimkomuniOlísdeild karla
Vefumsjón: Gonora