Austurríki byrjaði leikinn töluvert betur og komst í 9-4 áður en að íslenska liðið kveikti á sér. Strákarnir komu tilbaka og staðan í hálfleik var 16-15 fyrir Austurríki. Íslenska liðið mætti mun betur í seinni hálfleikinn sem byrjaði jafn en eftir 10 mínutur í seinni hálfleik þá tók Ísland yfirhöndina og vann að lokum fimm marka sigur 32-27.
Markaskorarar Íslands:
Andri Erlingsson - 8 Mörk
Birgir Leó Stefánsson - 6 Mörk
Ágúst Guðmundsson - 6 Mörk
Harri Halldórsson - 3 Mörk
Stefán Magni Hjartarson - 3 Mörk
Jens Bragi Bergþórsson - 2 Mörk
Elís Þór Aðalsteinsson - 2 Mörk
Antoine Óskar Patano - 1 Mark
Jökull Blöndal Björnsson - 1 Mark
Markvarsla:
Markvarsla:
Alexander Ásgrímsson - 12 Varðir 30.77%






