Íslenska liðið spilaði gegn Ungverjalandi um 5. sæti á Evrópumótinu sem haldið var í Serbíu og var leikurinn jafn til að byrja með og staðan var 17-17 þegar gengið var til hálfleiks. Ungverjar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og komust þremur mörkum yfir en þá tók íslenska liðið aftur við sér og þegar um 10 mínutur voru eftir af leiknum var íslenska liðið komið fjórum mörkum yfir. Þeir héldu í forskotið út leikinn og lauk leiknum að lokum með fjögurra marka sigri 35-31 og endaði þar með í 5. sæti á mótinu. Liðið tapaði einungis einum leik sem var á móti Þýskalandi í 8-liða úrslitum og fóru þjóðverjar alla leið og unnu mótið.
Markaskorarar:
Ómar Darri Sigurgeirsson - 8 Mörk
Logi Finnsson - 5 Mörk
Gunnar Róbertsson - 5 Mörk
Bjarki Snorrason - 5 Mörk
Freyr Aronsson - 3 Mörk
Brynjar Narfi Arndal - 2 Mörk
Alex Unnar Hallgrímsson - 2 Mörk
Anton Frans Sigurðsson - 2 Mörk
Patrekur Smári Arnarson - 1 Mark
Kristófer Tómas Gíslason - 1 Mark
Matthías Dagur Þorsteinsson - 1 Mark
Markvarsla:
Anton Máni Francisco Heldersson - 6 Varin 30%
Sigurmundur Gísli Unnarsson - 6 Varin 28.57%





