HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Erlendar fréttir

Valter Chrintz kveður Fuchse Berlin

Valter Chrintz kveður Fuchse Berlin

Mynd: Armin Rauthner

Sænski hornamaðurinn Valter Chrintz yfirgaf í dag þýska liðið Fuchse Berlin.


Valter Chrintz var einn efnilegasti hægri hornamaður í heimi þegar að hann samdi við Fuchse Berlin árið 2020. Hann varð hins vegar því miður fyrir því óláni að slíta krossband þrisvar sinnum á þeim tíma sem hann var samningsbundinn liðinu og náði því aldrei þeim hæðum sem honum var ætlað. Honum tókst þó að spila 128 leiki og hefur hann að auki spilað 34 landsleiki með Svíum og skorað í þeim 60 mörk.


Ekki er víst hvað tekur við hjá Valter Chrintz en hann hefur verið orðaður við HÖJ Elite en einnig hafa heyrst orðrómar um heimkomu til Kristianstad í Svíþjóð. Einar Bragi Aðalsteinsson, Andri Erlingsson og Baldur Fritz Bjarnason spila allir með liðinu sem og að Gunnar Steinn Jónsson er aðstoðarþjálfari þar.


Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er ÍR búið að finna aðstoðarmann Bjarna?Grill66deild karla
  2. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  3. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  4. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora