HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild karla

Olísdeild Karla: Ótímabær spá - Seinni hluti

Olísdeild Karla: Ótímabær spá - Seinni hluti

Mynd: Víkingur handbolti

Þá er komið að seinni hluta í ótímabæru spánni fyrir Olísdeild karla sem hefst þann 3. september. 

7. Sæti: Þór

Þórsararnir hafa verið duglegir að styrkja sig í vetur og það er óhætt að segja að það verði danskir dagar fyrir norðan en þeir hafa sótt þá Bertram Simonsen, Mikkel Jensen, Oliver Christensen og William Skovsager sem eru allir frá Danmörku. Kári Kristján og Halldór Kristinn eru hættir og Igor Chesilov er farinn frá félaginu. Ritstjórn Harpixins telur að Þórsararnir muni tryggja sér frekar þæginlega sæti í úrslitakeppninni. 


8. Sæti: ÍBV

Það hafa verið miklar breytingar á leikmannahópi ÍBV. Andri Erlings, Hákon Daði, Andrés Marel og Egill Oddgeir eru farnir frá félaginu ásamt því að Ísak Rafnsson og Nökkvi Snær eru hættir. ÍBV er samt alltaf ÍBV og það verður ekki þæginlegt að mæta þeim. Þeir eru með frábært yngriflokka starf og Erlingur kann að búa til frábær lið og liðsheild. Daníel Þór og Dagur Arnarsson verða að stíga upp. 


9. Sæti: HK

Það hafa orðið töluverðar breytingar á leikmannahópi HK en þeir Ágúst Guðmunds, Hjörtur Ingi, Haukur Ingi og Sigurður Jefferson hafa allir yfirgefið liðið en þeir voru allir í stórum hlutverkum hjá liðinu á síðasta tímabili. Þeir hafa sótt Andrew Wisman frá Danmörku, Trúgva Hávardsson frá Færeyjum og þá Tómas Braga frá Gróttu og Alex Mána frá Fjölni. Ritstjórn Harpixins hefur áhyggjur af því að þetta gæti orðið mjög langur vetur hjá HKingum en þeir eru með frábæran þjálfara sem kann að búa til lið. 


10. Sæti: Víkingur

Víkingur. Líklega mesta óskrifaða blaðið. Aðalsteinn Eyjólfsson er þjálfari liðsins og er líklega einn færasti þjálfari landsins. Það er hins vegar mikill munur á Grill 66 deildinni og Olísdeildinni og það verður því áhugavert að sjá hvernig Víkingar mæta til leiks. Reynsluboltinn Jóhann Reynir Gunnlaugsson er hættur í handbolta en Víkingar hafa sótt þá Gunnar Hrafn, Þorgeir Bjarka, Kristján Rafn, Elvar Otra og Elías Inga. Þetta verður langur vetur í safamýrinni en Víkingar eru staðráðnir í því að halda sér uppi og ritstjórn Harpix.is telur að þeir muni gera það. 


11. Sæti: Selfoss

Það hefur verið lítið að frétta frá Selfossi í sumar annað en að Örn Þrastarson er orðinn aðalþjálfari liðsins. Carlos Martin vann frábært starf hjá félaginu og það verður áhugavert að sjá hvernig selfoss mætir leiks. Þeir hafa ekki ennþá bætt við sig leikmönnum og Sverrir Pálsson er hættur. Selfoss verður að búa til gryfju á heimavelli ef að þeir ætla að eiga séns á að sleppa við umspil og halda sér í deildinni. 


12. Sæti: Stjarnan

Verður Stjörnuhrap í vetur? Stjarnan hélt sér uppi í Olísdeild karla með sigri í umspilinu en það hefur verið lítið að frétta síðan þá. Þeir hafa misst þá Adam Thorstensen, Hans Jörgen, Jón Ásgeir og Benedikt Marínó er hættur í handbolta. Sverrir Eyjólfs og Tandri eru þjálfarar liðsins og þeir verða að ná að kreista allt úr núverandi leikmannahópi ætli þeir sér að halda liðinu uppi. Dagur Sverrir er kominn til félagsins frá Vinslövs og þeir hafa líka sótt Tóka Friðriksson frá Færeyjum. Þeir þurfa 2-3 góða leikmenn í breiddina í viðbót ef að þeir ætla sér að sleppa við fall en oft hefur verið mikið um meiðsli í Garðabænum. 

Þetta var seinni hluti ótímabæru spánnar fyrir Olísdeild karla sem hefst þann 3. september. Ótímabæra spáin fyrir Olísdeild kvenna verður birt yfir helgina. 

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?Olísdeild kvenna
  2. Á lista yfir 10 markahæstu leikmennLandslið kvenna
  3. Harpix.is hefur göngu sína!Olísdeild karla
  4. Hættur við að hætta?Olísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla