HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Olís deild kvenna: Ótímabær spá - Fyrri hluti

Olís deild kvenna: Ótímabær spá - Fyrri hluti

Mynd: HSÍ

Olís deild kvenna hefst eftir 63 daga eða þann 5. september. Í tilefni þess hefur ritstjórn Harpix.is tekið sig saman og búið til ótímabæra spá fyrir deildina. Þessu verður skipt upp í tvo hluta, efstu 5 liðin og neðstu 5 liðin.


1. Sæti: Valur


Valur fór alla leið í úrslitaeinvígið á síðasta tímabili þar sem þær unnu ÍBV eftir spennandi viðureign. Eftir að úrslitaeinvígi þeirra lauk þá tilkynnti Valur að þær hefðu samið við Britney Cots um að spila með Val á næsta tímabili, mikill missir fyrir ÍBV en góð viðbót fyrir Val. Eins og gefur til kynna þá sér Harpixið enga breytingu á gengi Vals á næsta tímabili þrátt fyrir að þær hafi misst þær Theu Imani og Lilju Ágústsdóttur í atvinnumennsku og liðin í kring hafi styrkt sig. 


2. Sæti: Haukar


Haukar enduðu í 3.sæti í Olís deildinni í fyrra eftir að hafa orðið Íslandsmeistarar árið áður. Það hafa orðið talsverðar breytingar á hópnum þeirra frá síðasta tímabili en í heildina hafa 6 leikmenn ákveðið að skipta um lið, sett skóna á hilluna eða flutt erlendis í nám. Haukar styrktu sig þó vel, þær hafa sótt Bertu Rut Harðardóttur frá Kristianstad, Þóru Björg Stefánsdóttur frá Rival og þær Guðmundu Auði Guðjónsdóttur og Hrafnhildi Önnu Þorleifsdóttur frá Stjörnunni. Haukar verða því með spennandi lið á næsta tímabili þar sem þær hafa aukið breiddina með þessum félagsskiptum og hafa einnig tekist að halda þeim mikilvægum póstum í liðinu á borð við Emblu Steindórsdóttur, Jóhönnu Margréti Sigurðardóttur og Rakel Oddnýju Guðmundsdóttur. Harpix telur þó að þær muni ekki fara alla leið.


3. Sæti: ÍBV

ÍBV urðu að taka við 2.sætinu í fyrra eftir viðureign gegn Val. Það hafa ekki orðið miklar breytingar á hópnum en þær hafa þó sótt Andreu Jacobsen frá Blomberg Lippe í Þýskalandi. Þær eru því með stórskotalið í fremstu víglínu en ásamt Andreu munu Birna Berg Haraldsdóttir og Sandra Erlingsdóttir halda uppi sóknarleik þeirra. 


4. Sæti: Fram


Það gekk brösuglega í fyrra hjá Fram þar sem þær enduðu í 5.sæti deildarinnar eftir að hafa verið lið í efstu röðum tímabilin á undan. Það hafa orðið breytingar á þjálfarateymi liðsins sem og leikmannahópurinn hefur breyst. Díana Guðjónsdóttir var ráðin sem aðstoðarþjálfari liðsins, Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín hefur haldið út í atvinnumennsku, Lena Margrét Valdimarsdóttir var sótt frá Skara, Hanna Guðrún Hauksdóttir sótt frá Stjörnunni og Ebba Guðríður Ægisdóttir kom frá fram. Það hefur verið hiti í Úlfarsárdalnum eins og Harpixið hefur fjallað um og því er í raun ómögulegt að spá fyrir því hvernig þær munu koma til leiks. Við teljum þær þó ekki vera á pari við lið ofar í deildinni. Ef þær ætla að gera tilkall að titlinum þá þurfa leikmenn eins og Harpa María Friðgeirsdóttir, Lena Margrét og Hulda Dagsdóttir sem og aðrir leikmenn liðsins að skila góðri frammistöðu í hverjum einasta leik sem þær svo sannarlega geta.


5. Sæti: Stjarnan


Stjarnan spilaði hræðilega á köflum á síðasta tímabili og var einum leik frá falli. Það hafa orðið miklar breytingar á liðinu Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir og Þóra Hrafnkelsdóttir (var á láni) eru allar farnar í Hauka, Eva Björk Davíðsdóttir er farin í Gróttu, Hanna Guðrún Hauksdóttir samdi við Fram, Rakel Dórothea Ágústsdóttir er farin í Aftureldingu og Rakel Guðjónsdóttir mun ekki halda áfram með liðinu á næsta tímabili. Þetta eru því 7 leikmenn sem fóru frá liðinu en Stjarnan sótti heldur betur styrkingu þar sem þær hafa sótt 6 leikmenn fyrir komandi tímabil. Trude Blestrud Håkonsen samdi við liðið en hún kemur frá KA/Þór þar sem hún skoraði 83 mörk í deildarkeppni í fyrra, Sara Winde kemur til liðsins frá Skövde, Elín Vilhjálmsdóttir var sótt frá Haukum, Valgerður Erla Snorradóttir kemur til liðsins frá Víking og þær Erla Sif Leósdóttir og Sigrún Erla Þórarinsdóttir ganga til liðsins frá Val. Við hjá Harpix teljum að gengi liðsins muni batna til muna og þær munu verða meðal 5 efstu liða deildarinnar í ár.


Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?Olísdeild kvenna
  2. Á lista yfir 10 markahæstu leikmennLandslið kvenna
  3. Harpix.is hefur göngu sína!Olísdeild karla
  4. Hættur við að hætta?Olísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla