HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Olísdeild kvenna

Hafnar Víkingur sætinu í efstu deild?

Hafnar Víkingur sætinu í efstu deild?

Mynd: Víkingur handbolti

Ákveðið var á ársþingi HSÍ sem haldið var í vor að fjölga liðum í Olís deild kvenna úr 8 í 10. HK fór beint upp og Grótta og Víkingur fylgdu þeim upp á meðan að Selfoss féll í grillið.

Víkingur þáði sætið í Olís deildinni í byrjun sumars nú eru háværar sögusagnir um hvort þær séu í stakk reiðubúin að taka þátt. Einungis 9 leikmenn eru skráðir með samning hjá þeim og ná þær því ekki einu sinni í hóp eins og staðan er núna. 

Það er virkilega áhugavert hve lág upphæðin er sem Víkingur þarf að borga ákveði þær að hafna sætinu í Olís deildinni en samkvæmt heimildum Harpixins er sektin fyrir það að skrá sig úr deildinni einungis 250.000kr sem er einungis dropi í hafið hjá stórveldinu. Talið er að Selfoss, sem á fyrsta rétt á sætinu ef Víkingar ákveða að vera ekki með, muni ekki taka við því og þar af leiðandi myndi FH fá valið um að spila í Olís deildinni á næsta tímabili.

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Er ÍR búið að finna aðstoðarmann Bjarna?Grill66deild karla
  2. Er leikmaður Aftureldingar á leiðinni norður?Olísdeild karla
  3. Annar ungur leikmaður lánaður úr MosfellsbæOlísdeild karla
  4. Selfoss vann Víking í tvígang á RagnarsmótinuOlísdeild karla
  5. Verður Aron Rafn ekki með Haukum í vetur?Olísdeild karla
Vefumsjón: Gonora