HARPIX.IS

Fréttir sem festast...

Erlendar fréttir

Dylan Nahi semur við PSG

Dylan Nahi semur við PSG

Mynd: PSG

Dylan Nahi hefur samið við PSG en félagsskiptin munu fara fram árið 2027. 


Nahi sem er samningsbundinn Kielce í Póllandi til ársins 2028 nýtti klásúlu í samning sínum sem gerði honum kleift að semja við frakklandsmeistara PSG. Hann mun því spila aftur með uppeldisfélaginu frá og með næsta tímabili.


“Ég er virkilega stoltur að hafa skrifað undir. Ég er hæst ánægður með að vera kominn aftur heim. Þegar ég fór (frá PSG) var ég bara strákur. Nú kem ég til baka sem fullmótaður leikmaður, og það var eitt af markmiðum mínum. Mig langaði til þess að spila í þessari treyju aftur, líf mitt er hér. Paris er liði mitt, þetta er borgin mín. Mig langaði til að koma aftur og ég er virkilega heppinn að hafa fengið tækifæri til þess” sagði Dylan Nahi í viðtali við PSGTV.

Samningur hans við PSG gildir til ársins 2031.

Nýjustu fréttir

Mest lesið

  1. Hvað gerðist eiginlega í Úlfarsárdal?Olísdeild kvenna
  2. Á lista yfir 10 markahæstu leikmennLandslið kvenna
  3. Harpix.is hefur göngu sína!Olísdeild karla
  4. Hættur við að hætta?Olísdeild karla
  5. Olísdeild Karla: Ótímabær spá - fyrri hlutiOlísdeild karla