Olís deild karla hefst þann 3. september og í tilefni þess hefur ritstjórn Harpix.is tekið saman lista yfir 5 leikmenn sem eru 20 ára eða yngri og gætu tekið yfir deildina.
1. Gunnar Róbertsson
Gunnar Róbertsson er nafn sem flestir sem hafa fylgst með handbolta síðastliðin ár hafa heyrt. Gunnar er 18 ára gamall og lék sína fyrstu leiki með Val tímabilið 2024/2025. Á síðasta tímabili skoraði Gunnar 154 mörk og gerði 91 stoðsendingu í 29 leikjum en þetta er leikmaður sem er með stórt vopnabúr og getur tekið stöðuskot, fintað sig í gegn og stokkið upp. Gunnar hefur sýnt það að hann er tilbúinn í að leiða sóknarlínu Valsmanna en hann er líka góður varnarmaður.
2. Ómar Darri Sigurgeirsson
Stjarna úrslitakeppninar á síðasta tímabili. Ómar Darri stimplaði sig inn með krafti í deild þeirra bestu á síðasta tímabili þrátt fyrir að vera einungis 18 ára gamall. Hann er stór og stæðileg skytta sem skoraði 157 mörk og gerði 68 stoðsendingar fyrir FHinga á síðasta tímabili. Þetta er gríðarlegt efni og ef einhver á að geta tekið svona skyttu á næsta level þá er það Aron Pálmarsson sem tók við þjálfun FH í sumar. Þetta er leikmaður sem verður gaman að fylgjast með í vetur.
3. Freyr Aronsson
Heilinn í sóknarleik Hauka. Þrátt fyrir að hafa verið einungis 17 ára gamall í fyrra þá var Freyr Aronsson hættulegasti sóknarmaður Hauka á síðasta tímabili. Gunnar Magnússon gaf honum fullt traust og það er óhætt að segja að hann deliverað. Freyr bar uppi sóknarleik Haukana og skoraði 180 mörk og gerði 106 stoðsendingar í 28 leikjum. Það verður virkilega gaman að sjá hann á næsta tímabili þegar hann mætir reynslunni ríkari til leiks.
4. Harri Halldórsson
Harri Halldórsson er leikmaður sem Mosfellingar halda varla vatni yfir. Þetta er strákur sem er búinn að fá stækkandi hlutverk hjá Aftureldingu síðustu tímabil og var orðinn aðal maðurinn á síðasta tímabili. Harri getur spilað sem skytta eða miðjumaður og sem þristur í vörn. Harri er útsjónarsamur leikmaður með mikinn sprengikraft. Harri skoraði 96 mörk og gerði 76 stoðsendingar á síðasta tímabili og mun fá mun enn meiri ábyrgð í sóknarleik Mosfellinga á næsta tímabili. Það verður áhugavert að sjá hvernig nýtt þjálfarateymi Mosfellinga muni nota Harra en á síðasta tímabili fékk hann oft litla sem enga hvíld sem hafði áhrif á ákvarðanatökuna í sóknarleiknum.
5. Elís Þór Aðalsteinsson
Elís Þór er búinn sanna sig sem einn af betri leikmönnum deildarinnar en hann var algjör lykilmaður hjá Eyjamönnum í fyrra og mun fá enn meiri ábyrgð í sóknarleik liðsins í ár. Elís skoraði 111 mörk og gerði 69 stoðsendingar í 17 leikjum í fyrra en þetta er leikmaður sem getur fintað sig í gegn og skotið fyrir utan. Elís Þór getur klippt á snöruna þegar þörf er á og Eyjamenn munu leita mikið til hans í vetur vegna þess að Andri Erlingsson er farinn. Þetta er leikmaður sem gæti tekið yfir deildina.
FRÉTT
Bestu leikmenn deildarinnar undir tvítugt

Mynd: mbl.is/Sigfús Gunnar





