Það hefur verið meiri hreyfing í félagaskiptaglugganum í sumar en á síðasta tímabili og því hefur Harpix.is tekið saman 5 bestu félagaskiptin í sumar í Olís deild karla.
1. Dagur Árni Heimisson í KA
Félagaskipti Dags Árna í Val gengu ekki alveg eftir eins og menn vonuðust til og voru KA menn fljótir að sækja sinn mann aftur heim. Dagur Árni er einn efnilegasti leikmaður landsins og er alvöru leikstjórnandi sem getur bæði skorað og skapað færi fyrir aðra. Dagur var í erfiðleikum með meiðsli á síðasta tímabili og verður stærsta spurningin hvort að hann nái að halda sér heilum en ljóst er að honum er ætlað að halda uppi sóknarleik KA ásamt Bjarna Ófeigi.
2. Tjörvi Týr Gíslason í Val
Tjörvi Týr snéri aftur heim úr atvinnumennsku í sumar og er ljóst að þarna eru Valsmenn að fá einn allra besta varnarmann landsins til sín. Tjörvi getur spilað vörn og sókn og er mikill leiðtogi inná vellinum. Það verður óþægilegt fyrir sóknarmenn að mæta Valsmönnum í vetur og hætta á því að menn fari heim með marblett eða tvo.
3. Hákon Daði Styrmisson í Aftureldingu
Þegar það fór að spyrjast út að Mosfellingar væru að losa Ihor Kopyshynskyi fóru menn að velta fyrir sér hvernig þeir ætluðu sér að fá einhvern í staðinn fyrir einn allra besta hornamann deildarinnar. Mosfellingar þögguðu niður í þeim efasemdum þegar þeir sóttu einn af kannski tveimur hornamönnum deildarinnar sem eru á sama leveli og Ihor en Hákon er mikil markavél og er sigurvegari og mun koma með mikla reynslu inn í lið Mosfellinga. Hákon mun koma með eyjageðveikina í Mosó og er mikill leiðtogi innan og utan vallar.
4. Haukur Ingi Hauksson í Fram
Menn hafa verið að velta fyrir sér hver eigi að skora mörkin þegar Rúnar Kárason lagði skónna á hilluna og frammarar svöruðu því með að sækja Hauk Inga frá HK. Haukur Ingi skoraði 129 mörk á síðasta tímabili og er óhræddur við að sækja á markið. Það verður hausverkur fyrir Einar Jónsson að stilla upp byrjunarliðinu á næsta tímabili en fyrir eru frammarar með Viktor Sigurðsson, Danjál Ragnarsson, Þorstein Gauta Hjálmsson og Marel Baldvinsson er að snúa tilbaka úr meiðslum.
5. Sigurður Jefferson í Hauka
Einn allra besti línumaður deildarinnar. Sigurður Jefferson hefur sýnt það síðastliðin ár að hann er einn besti línumaður deildarinnar ásamt því að vera framúrskarandi varnarmaður. Haukarnir voru virkilega klókir að sækja Sigurð en hann og Þráinn Orri eru tveir af betri línumönnum deildarinnar á báðum endum vallarins. Það verður virkilega erfitt að mæta Haukunum í vetur með Sigurð á línunni að blokka fyrir menn eins og Frey Aronsson.
FRÉTT
Olís deild karla: 5 bestu félagaskipti sumarsins ( hingað til )

Mynd: KA handbolti





